Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1973, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1973, Blaðsíða 25
Á frívaktinni I umferðafjöldanum Það var á æskulýðsmóti, ræðu- maður dvaldi allengi við siðfræði- legu hliðina: „Sá sem beygir sig þegar hann hefir á röngu að standa, hann er skynsamur mað- ur. En sá sem lætur undan, þegar hann hefir á réttu að standa, hann er, hann er. . . . „Hann er giftur!“ hrópaði rödd aftur úr salnum. Og hættu nú! * Hákon Noregskonungur var geysi vinsæll og ferðaðist mikið um meðal þegna sinna. Eitt sinn gisti hann á Strand Hotel í Sola. Hótelstjórinn, Axel Lund, sem var danskur, tók að vonum glæsilega á móti konungi, sem spurði hann um eitt og ann- •að á sinn alþýðlega hátt. Þegar konungur kvaddi, sagði hann: „Þér hafið svei mér kom- izt vel áfram hér í Noregi, herra Lund“. „Jú takk, sömuleiðis, yðar há- tign“, svaraði Lund að bragði. VlKINGUR Sá, sem gerir skyldu sína fyrir ættjörðina, á þakkir skildar, en sá, sem deyr fyrir hana, deyr aldrei. * Hugleiðingar „Rauðsokku“ Þið segið að við konurnar stjórnum heiminum og ráðum yf- ir ykkur karlmönnunum. Er þá ekki hyggilegast að láta okkur sitja fyrir um alla mennt- un og ábyrgðarstöður í þjóðfé- laginu. Þeim mun skynsamlegar stjórnum við heiminum og ykkur. * Irinn: „Skipið sekkur! Skipið sekkur“. Skotinn: „Hvað er þetta mað- ur. Hvað ertu að skrækja. Átt þú skipið?“ * TVÍDOBBLUÐ! Frú Jónína var komin nokkuð á leið og læknirinn hafði nýverið tjáð henni, að hún gengi með tví- bura. Hún var ákafur bridgespilari og var í spil'aklúbbi. 1 keppni í seinna „geimi“ í einu spilinu, var há sögn hjá henni dobbluð. Varð henni þá að orði: „Þetta er alveg sama tilfellið og hjá Andrési, manninum mín- um. Hann lét sig ekki muna um að „dobbla“ mig á hættunni.“ I næsta spili missti frú Jónína spil á gólfið. Hún beygði sig eftir því í flýti og sagði í ógáti: „Æ, nú missti ég kónginn!“ „Þú mátt ekki segja þetta!“ hrópaði mótspilari gremjulega. „Ég sagði ekki að það væri spaðakóngurinn," hreytti þá frú Jónína út úr sér. HITI I KOLUNUM Rakari einn í Rio de Janeiro er kominn bak við lás og slá, vegna þess, að hann viljandi skar eyrnasnepil af viðskiptavini. Atburðurinn skeði vegna þess, að viðskiptavinurinn talaði niðr andi um knattspyrnulið borgar- innar, hvað hinn ekki þoldi. Búizt er við að rakarinn fái vægan dóm! * Listmálari hitti bónda nokk- urn, sem honum leizt vel á og tók hann tali. Bauð hann bónda álit- lega peningaupphæð, ef hann vildi leyfa sér að mála hann. — Bóndinn gaf ekkert út á það, en velti vöngum um stund. „Þetta eru léttfengnir pening- ar“, segir málarinn. „Ja-á, en það er nú ekki það, sem skiptir svo miklu máli“, seg- ir bóndi, „ég var að velta því fyr- ir mér, hvernig ég gæti náð af mér málningunni aftur“. 225

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.