Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 77

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 77
33. þing . . . bilinu 1. ágúst 1991 til 1. febrúar 1997. Ný eöa nýleg tæki sem fjallað er um: Navtex-búnaður skal vera I öllum skipum eftir 1. ágúst 1991. Veöurspár, tilkynningar til sjófarenda og neyðarskeyti er sent út á ensku á 518 kHz og skilar viðtækið sendingunum á prentara. Stafrænt valkall (DSC), með þessu tæki er hægt að kalla í tiltekið skip, eða öll skip. Einnig er hægt að kalla frá skipi í til- tekna strandarstöð eða skip, velja símanúmer o.fl.. Gervihnattafjarskipti með Standard A stöð þ.e. sími, tölvusamband eða telex. Þá mun einnig verða á boðstólum ódýrari útgáfa svonefnd Standard C, er notar eingöngu telex. Á stuttbylgju verður skylt að hafa NBDP þ.e.a.s. telex auk talsambands. EPIRB, það er staðsetningar- neyðarbauja á 406 MHz sem fer í gegnum gervitungl. í björgunarförum verður skylt að hafa radarsvara á 9 GHz og beranlegar örbylgjustöðvar. Ég hef aðeins stiklað á helstu atriðum í sambandi við hið nýja fjarkiptakerfi. Ekki hefur enn náðst samkomulag innan Al- þjóðasiglingamálastofnunar- innar um hverjir eigi að þjón- usta og halda við fjarskipta- tækjunum. Hinn 14. október s.l. voru á þingi Alþjóðafjarskipta- ráðsins í Genf gerðar ýmsar samþykktir er varða hið nýja fjarskiptakerfi, svo sem um menntunarkröfur til að fá hin ýmsu skírteini til að mega nota fjarskiptabúnað skipa, þ.e. fyrir skírteini 1. eða 2. flokks raf- eindaloftskeytamanns (Radio Electronic Officer), almennt skírteini talstöðvavarðar, og takmarkað skírteini talstöðva- varðar. FÉLAGSMÁL Talstöðvavörður með takmark- að skírteini, má aðeins nota stöðvar um borð í skipum er sigla innan örbylgjusviðs strandarstöðva. Talstöðva- vörður með almennt skírteini, má aðeins nota stöðvar um borð í skipum er sigla innan ör- bylgju- eða millibylgjusviðs strandarstöðvar. En þá kemur að því hvað varðar mína stétt mest í sambandi við þetta nýja kerfi, en það er að skip sem sigla á hafsvæðum utan milli- bylgjusviðs strandarstöðva skulu hafa 1. eða 2. flokks raf- eindaloftskeytamann um borð. Það skal tekið skýrt fram að þrátt fyrir hið nýja kerfi, munu þær reglur sem nú eru í gildi vera það áfram enn um sinn. En hvernig er menntunarmál- um loftskeytamanna háttað í dag? Því er fljótsvarað, það hefur enginn skóli verið haldinn síðan 1979 en þá voru loft- skeytamenn útskrifaðir síðast. Á árunum 1981 til 1983 var starfandi nefnd er fjallaði um menntun loftskeytamanna og var það niðurstaða hennar að námið skyldi fara fram við Iðn- skólann í Reykjavík og aukið verulega við rafeindamenntun nemenda, þannig að þeir yrðu einnig rafeindavirkjar. Það hefði komið vel út miðaö við þær kröfur sem Alþjóðafjar- skiþtaráðið samþykkti nú ný- verið um menntun rafeindaloft- skeytamanna, en því miður voru störf nefndarinnar stöðv- uð af Menntamálaráðuneytinu og Iðnfræðsluráði hinn 1. nóv. 1983, þegar nefndin var tilbúin til að semja námsskrá. Síðan hefur engu verið þokað í menntunarmálum loftskeyta- manna. Nú er svo komið að við eigum í erfiðleikum með að manna þessar fáu stöður sem eftir eru á skipunum og vart er betra ástandið hjá strandar- stöðvum Pósts og síma. Ég vil beina því til annarra stétta um borð í íslenskum skipum, að þær hugleiði og svari hreinskilningslega hvort þær telji þörf á sérmenntuðum manni í viðhaldi tækja og til að annast fjarskiptin um borð hjá sér. Sá maður er ekki einvörð- ungu til öryggis fyrir sitt eigið skip, heldur einnig fyrir nær- stödd skip er kynnu að þurfa á aðstoð að halda. Það er ykkar að segja til um hvort þörf er á þessum öryggisþætti um borð hjá ykkur. Að lokum vil ég brýna alla að hafa góða hlustvörslu og hafa tækin í lagi um borð í sínu skipi, því óhugnanlegt hlýtur að vera að frétta síðar af neyðarkalli skammt frá sér, en hafa ekki vitað af því vegna slælegrar hlustvörslu eða bilaðra tækja. Fulltrúar FlL á 33. þingi FFSÍ Anna Lilja Jóns- dóttir og Reynir Björns- son. Anna Lilja sat nú sitt annaö þing og er eina konan sem þar hef- ur setið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.