Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 92

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 92
Helgi Hálfdánarson Frásögn þessi var flutt af Helga Hálf- dánarsyni sjó- manni og síðar netagerðarmanni á skemmtikvöldi hjá félagi aldraðra á Akureyri. Guð- mundur Björnsson hjá Ú.A. kom frá- sögninni til Hall- dórs Hallgrímsson- ar skipstjóra sem kom þessu að lok- um til Víkingsins. Næst tekur viö Pentiandsfjöröur með allri sinni dýrð af vitum á bæöi borð. 92 VÍKINGUR SfÐASTA FERÐIN Patreksfjaröartogarinn „LEIKNIR“ lá viö bryggju i heimahöfn tilbúinn aö sigla til Englands og átti að selja í hafnarborginni Hull. Skipið var meö góöan afla. Skip þetta var smiðað i Þýskalandi 1921 fyrir hlutafé- lagið Sleipnir i Reykjavik og hét þá „GLAÐUR". Var skipt um nafn á því er Ólafur Jó- hannesson & Co. á Patreks- firði keypti það og það skýrt „LEIKNIR". Var skipiö af svip- aðri stærð og flestir íslenskir togarar frá þessum tíma, eða um 300 brúttólestir. Nítján manna áhöfn var á „LEIKNI“ i þessari ferð. Skipstjóri var Ingvar Vil- hjálmsson, en stýrimaður Árni Árnason, sonur Árna frá Höfðahólum. Vaktir voru tvær, Árni fyrir annarri, en ég Helgi Halfdánarson fyrir hinni, en ég var bátsmaður. Fyrsti vélstjóri var Eyjólfur Eyjólfsson, en loftskeytamaður Adolf Hall- grimsson. Ennfremur er getið hér tveggja háseta, þeirra Friðriks Magnússonar og Daviðs Davíðssonar, en dóttir Davíðs, Sigurlína, sést á sjón- varpsskjánum oft i hverri viku. Frá bryggju var haldið og segir ekki af ferðum skipsins fyrr en komið var til Hull 15. nóvember og fiskurinn seldur daginn eftir fyrri 2.400 sterl- ingspund, sem þá þótti góð sala. Nóttina áöur en þessi sala fór fram skemmtu dreng- irnir sér við vin og fagrar meyj- ar og drógu ekki af sér eins og gefur að skilja með hrausta Ís- lendinga. Nú rann upp 17. nóvember og skipið aö verða klárt til heimferðar. Um kvöldið er lagt af stað til Íslands. Var skipið drekkhlaðið af kolum, allar lestar fullar og mikið á dekki, svo miðdekkið var í kafi, á fer- lausu skipi. Var síðan haldið niöur Humberfljót að vitaskip- inu og leiðsögumanni skilað, og þar meö var heimferðin hafin. Fyrst er siglt eftir Norðursjó. Við siglum fram hjá Kinnairds Head og þar er tekin miðun. Næst tekur svo við Pentlands- fjörður með allri sinni dýrð af vitum á bæði borð. En fjörður- inn er milli Skotlands og Orkn- eyja. Þar eru straumar svo harðir aö skip hafa skrúfast niður eða misst stjórn á sér. Fyrsti viti á bakborða á heim- leið er Duncansby Head en á stjórnborða Pentland Skerries, og er þá komið i Pentilinn. Svo kemur Stroma á bakborða og Dunnet Head á stjórnborða. Síðan er Swona þegar Dunnet Head er þvert á bakborða, og er þá loks komið út úr Pentlandsfirðinum á opiö haf. Næsti viti er Sule Skerry og frá honum er stefna sett til norðlægrar áttar áleiðis til Ís- lands. Er hér var komið voru komin 8—10 vindstig með frosti og snjókomu, sem sagt ofsaveð- ur. Öll dekklestin var horfin, þilfarið hvitskúrað, blindhrið svo ekki sást í hvalbakinn. Það var eins og Ægisdætrum væri skemmt við að misþyrma þessu litla fleyi, þvi, sem sagt, var aldrei nema miöjan upp úr, því brotsjóir gengu yfir skipið alla leiðina yfir hafiö og aldrei lát á barsmíðinni. Það var eins og skipið fyndi á sér ætlun Ránardætra og það braust um og stundi eins og þetta væri þess hinsta raun, enda feigðin á næsta leiti. En áfram var haldið með braki og brestum með fullri ferð eins og skipið þoldi og meira en þaö. Út i svarta myrkur og ekkert að sjá nema hvítflyssandi brotsjóa sem biðu eftir bráð sinni. Að öllum likindum átti skipið að vera komið nærri landi. Þann 20. nóvember kl. 4 e.h. eftir enskum tima var stoppað og dýpið mælt meö blýlóði, sem var með holu upp í end- ann, en í þessa holu var sett
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.