Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Page 29
gæsluflugsins sjálfur skipherra var meö okkur í áhöfn siglingafræðingur, fjöl- hæfileikaog listamaðurinn Jón- as Guðmundsson. Jónas hafði sérstaka ánægju af að fá að setjast í hægra flugmannssætiö og fá að stýra. Þegar við vorum á truflanalitlu flugi við eftirlit, t.d. ef lítið sást til skipaferða og lítið þurfti að gera. Þessir hrekkja- lómar, hér ónafngreindir, áttu það til að hrekkja svona viðv- aning ef þeir gátu því við komið. Efst í þaki vélarinnar voru stjórnvírar fyrir svokallað „trimm“ á vængjunum sem fínstillti af flughæð og stefnu. Auðvelt var fyrir kunnuga að færa þessa víra til með því að taka á þeim og færa þá fram og aftur sem þýddi það að annað hvort tók flugvélin dýfu eða hún fór skyndilega að klifra. Eitt sinn vill svo til að ég er, sjálfur skipherrann, að kasta af mér vatni þarna aftur í vélinni. Án nokkurra undanbragða þá finna bragðarefirnir rétt tæki- færi þegar ég er rétt hálfnaður að pissa og steypa vélinni fyrir- varalaust. Þetta hafði það í för með sér að ég lenti í þyngdar- leysi og missti fótanna þegar Jónas halaði kröftuglega í stjórntækin og rykkti vélinni upp til baka. í þetta skiptið fór sprænan víst vítt og breitt um allt nær- liggjandi rými þarna aftast í vél- inni í stað þess að enda í brús- anum. Ég, sjálfur skipherrann, hnyklaðist eins og hvert annað slytti niður í kjöl flugbátsins og fékk við ekkert ráðið!

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.