Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Page 30
FRIVAKTIN 30 VÍKINGUR Sú dökkbláa Þaö eru gömlu þekktu kring- umstæðurnar, forstjórafrúin siglir inn á skrifstofuna og held- ur viöstööulaust áfram beint inn á forstjóraskrifstofuna þar sem hún finnur einkaritarann á hnjánum á yfirmanni sínum. Þaö verður afar þvinguö þögn í herberginu, en |Daö er forstjór- inn sem áttar sig fyrstur. Hann segir meö formlegri rödd, eins og hann sé að lesa einkaritar- anum fyrir: — Og svo skrifum viö: „Þrátt fyrir slæma fjárhagsstööu fyrir- tækisins og erfiða tíma, er óhjá- kvæmilegt að fjárfesta í einum stól fyrir fyrirtækiö". Þegar Starfsmannafélag Eimskips hélt árshátíð sína á Hótel íslandi, ekki alls fyrir löngu, barst því eftirfarandi skeyti, sem talið er vera samið af Guðmundi Haraldssyni skip- stjóra: Kæru árshátíðargestir. Okkur langar að senda nokkrar línur svo að þið getið drukkið okkar skál. Eins og þið vitið hefur Eimskip fært töluvert út kvíarnar í siglingum með því að leigja sum skipa sinna, sem sigla nú á nýjar slóðir. Einhvers staðar heyrðist talað um að Eimskip skyldi kallaö Heim- skip. Við hér á Eyrarfossi höf- um ekki farið varhluta afþess- ari útþenslu í siglingum. Til dæmisnú, þegarþetta erlesið, eru flest ykkar sjálfsagt að sturta í ykkur öðru til þriðja glasi af frostleginum góða, sem varnarþví að blóðið frjósi í æð- um ykkar á hinum köldu löngu vetrarnóttum heima á Fróni, en á sama tíma erum við að sigla út frá hinni stríðshrjáðu borg, Beirút í Líbanon, í logni og 18 stiga hita. Byssur hinna stríð- andi fylkinga hafa leikið þessa borg mjög illa, en náðu ekki til okkar. Við óskum ykkur góðrar skemmtunar og hagið ykkur vel. Bestu kveðjur, Skipstjóri og skipshöfn Ms. Eyrarfossi. Nýgifta Nanna sat og grét þegar Gunni hennar kom heim úr vinnunni. — Hversvegna græturðu ástin mín? spurði Gunni. — Ég var aö pressa fötin þín og þá brenndi ég stórt gat á buxurnar, skældi Nanna. — Það er ekki svo slæmt, sagði Gunni. Ég á tvennar bux- ur viö jakkann. — Já, éggethuggaðmig við það, þá get ég tekið bætur úr hinum þegar ég fer að gera við þessar. Finnur forstjóri kom á fullu inn á skrifstofuna, sneri sér spenntur að ritaranum og spurði: — Hefur einhver hringt? — Já, hjalaði ritarinn, for- sætisráðherrann hringdi. Finnur snarbremsaði og breitt bros færðist yfir andlitið. Hann var greinilega upp með sér. — Þvílíkur heiður. Hvaðvildi hann? — Ekkert. Hann hringdi í skakkt númer. Hjúskaparráðgjafinn barðist hetjulegri baráttu og sagði við frúna: — Ég held að megi bjarga hjónabandi þínu ef þú reynir að

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.