Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Síða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Síða 52
Gámur skrifar 52 VÍKINGUR „ÉG SKIPTI " -spiallað í talstöðina Leiðari Guðjóns A. Kristjánssonar, forseta Far- manna- og fiskimannasambands íslands, í síð- asta tölublaði Víkingsins vakti að vonum mikla athygli. Guðjón leggur þar til að þorskkvótinn verði aukinn aftur um þau 10% sem hann var skertur í byrjun ársins, í Ijósi mikillar fiskigengdar á vertíðarmiðum og vegna þess hve vel togarar- allið kom út. Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar, átti dálítiö bágt í byrjun, en herti sig svo upp og sagðist ekki myndu leggja til við sjávarútvegsráðherra að kvótinn yrði aukinn. Ja- kob viðurkennir þó að togararallið hafi komið miklu betur út en hann átti von á. Einnig virðist hin góða vetrarvertíð hafa komið fiskifræðingum á óvart. En að bakka með fyrri fullyrðingar, nei takk. Annars segja þeir sem best þekkja til að það hefði ekkert þýtt fyrir Jakob að leggja til aukinn kvóta við Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra. Halldór breytir aldrei fyrri ákvörðun sinni frekar en Bjartur í Sumarhúsum. Halldór íhugar ævinlega vel allar ákvarðanir sínar, en eftir það fá hvorki Guð né menn þeirri ákvörðun breytt. Oft er talað um að skipastóll landsmanna sé of stór. Það kom samt í Ijós á loðnuveiðunum í vetur að ekki leifði neitt af þeim 49 skipum, sem höfðu leyfi til loðnuveiða. Meira að segja vantaði fáein tonn uppá að allur kvótinn næðist. Lúðvík Jós- epsson, fyrrum sjávarútvegsráðherra, sagði einu sinni um þetta mál; „Þegar vel veiðist er flotinn ekki of stór.“ Halldór Ásgrímsson hefur látið vel af Þýska- landsför sinni. Hann segir að þýskir ráðamenn hafi sýnt skilning á málstað íslendinga í hvalveiði- málinu. Þetta segja þeir sem fylgdust best með Þýskalandsförinni að sé mikið ofmat hjá Halldóri. Ferðin breytti nákvæmlega engu. Vinsamleg orð í skálarræðum hafi ekkert að segja og grænfrið- ungar muni geta farið sínu fram í baráttu sinni gegn íslenskum sjávarafurðum, án þess að þýsk- ir stjórnmálamenn lyfti svo mikið sem litla fingri málstað okkar til stuðnings. Ekkert bólar enn á fiskmiðlun þeirri sem sjávar- útvegsráðherra hefur lýst yfir að koma skuli. ís- lensk stjórnvöld mega ekki hafa forgöngu í mál- inu, vegna samninga við EB um að stjórnvöld skipti sér ekki af fiskútflutningi. Þau hagsmuna- samtök, sem Halldór Ásgrímsson bað um að hrinda málinu í framkvæmd, hafa ekkert gert enda er þar hver höndin upp á móti annarri. Vegna mikillar fiskigengdar á vertíðinni eru marg- ir bátar langt komnir með kvóta sína. Heyrst hefur af einum bát sem er búinn með kvótann. Menn uggðu ekki að sér í asaveiði fyrr en þeir voru búnir að fá 100 lestum meira en þeir ætluðu að taka á vertíðinni. Þessi 100 tonn áttu að geymast.til ann- arra veiða í sumar. Norðmenn eru búnir að veiða þorskkvóta sinn fyrir fyrri hluta þessa árs og hefja ekki aftur þorsk- veiðar fyrr en í haust. Þorskkvótinn hefur verið minnkaður í Barentshafi og Norðursjó auk ís- landsmiða. Vegna þessa er því spáð að fiskverð muni hækka stórlega á Evrópumarkaði á þessu ári. Sumir hafa áhyggjur af því að verðið fari svo hátt vegna minni afla, að fólk hreinlega hætti að kaupa fisk og þá væri verr farið en heima setið. Hafrannsóknastofnun hefur sagt að þeir þorsk- árgangar sem eru að vaxa upp hér við land séu í löku meðallagi. Það hefur því komiö mönnum á óvart hve mikið hefur verið um smáfisk á upp- eldisstöðvunum í vetur. Meira að segja hefur skyndilokunum aldrei verið beitt jafn mikið né jafn víða og nú. Þetta segja reyndir sjómenn að bendi til þess að Hafrannsóknastofnun hafi misreiknað sig eitthvað við mælingu þessara árganga. Því er haldið fram af talsmönnum dótturfyrirtækja SH og SÍS í Bandaríkjunum aö ekki þurfi að von- ast eftir verðhækkun á fiski á Bandaríkjamarkaði í ár. Því er haldið fram í markaðsblöðum í Banda- ríkjunum að þeir sem eru að selja þar fisk hafi slakað á auglýsingum og hægt á sér í sölu- mennskunni. Þetta er sögð helsta ástæða þess að minna selst af fiski vestra en áður. Margir óttast að kafbátsslysið fyrir norðan Noreg á dögunum geti orðið þess valdandi að Banda- ríkjamenn kaupi ekki fisk af þjóðum sem veiða í Norðurhöfum. Þótt vísustu menn lýsi því yfir að engin hætta sé á geislamengun, eru Bandaríkja- menn svo mengunarhræddir að þeir hafa þegar dregið úr kaupum á laxi frá Noregi. Þessi geislun- arótti þeirra gæti sett strik í reikninginn fyrir okkur íslendinga. Það er ekki bara að vertíðarbátar hafi veitt vel í vetur. Togararnir hafa mokveitt á öllum miðum. Afleiðing þessa verður að öllum líkindum sú að öll veiðiskip verða búin með aflakvóta sína mun fyrr á árinu en áður hefur verið. Það mun síðan verða til þess að auka enn á atvinnuleysið í landinu þegar líður á árið.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.