Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 59
KANADA Franska fyrirtækiö Europro hefur tekiö
upp viðræður viö kanadíska fyrirtækið Fisheries
Products International um að stofnsetja verk-
smiðju í Kanada sem á að vinna eggjahvítuefni úr
fiski og slógi. Fyrirhugað er að verja hálfum millj-
arði króna í verksmiðjuna og leggur Europro fram
þriðjung en FPI afganginn. Ætlunin er að vinna
fiskimjöl úr þeim 60% fisksins sem er venjulega
fleygt en úr hinum 40 hundraðshlutunum verður
unnið fóður fyrir landbúnað og fiskeldi. Þetta
verður fyrsta verksmiðjan sinnar tegundar í Norð-
ur-Ameríku.
NOVA SCOTIA Skelfiskvinnslufyrirtæki á Nova
Scotia fékk nýlega afhent stærsta skelfiskveiði-
skip heims. Skipið, sem heitir Scotian Surf, var
áður þjónustuskip fyrir olíuiðnaðinn. Það hefur
verið búið öflugri djúpsjávartönn sem getur skófl-
að upp allt að 160 tonnum af lifandi skelfiski.
Skipinu hefur einkum verið haldið úti á Banquer-
eau-miðunum út af Breton höfða og veitt þar
skelfisktegund sem kennd er við Stimson. Þessi
tegund er ekki algeng á borðum Kanadamanna
en Japönum þykur hún mikið lostæti og að sögn
fara vinsældir hennar vaxandi á vesturströnd
Bandaríkjanna.
ATLANTSHAF Horfur eru á samdrætti í þorsk-
veiðum víðast hvar um norðaustanvert Atlants-
haf. Það á við um íslandsmið en þó einkum miðin
við Norður-Noreg þar sem veiðar gætu dregist
saman um helming. Sjómenn í löndum Efna-
hagsbandalags Evrópu búast við verulegum
samdrætti í Norðursjó því fiskifræðingar mæla
með því að veiðarnar á þorski í Norðursjó verði
minnkaðar um 22%. Þessi samdráttur í þorsk-
veiðum gæti orðið til þess að styrkja stöðu Al-
askaufsans á evrópskum fiskmörkuðum.
PANAMA Vísindamenn við háskólann í Panama
aðstoða nú þarlent fyrirtæki við vinnslu á kítíni úr
rækjuskel. Kítín er notað til ýmissa hluta, jafnt í
iðnaði sem landbúnaði, svo sem við gerð sjón-
linsa, saumþráðar fyrir skurðlækningar og í fóður
handa kvikfénaði og fiðurfé. I Panama falla ár-
lega til 5.500 tonn af rækjuskel sem hingað til
hefur verið fleygt en úr því magni mætti vinna allt
að 1.000 tonnum af kítíni.
ÁSTRALÍA Búist er við harðri samkeppni meðal
ástralskra hafnarborga um að fá að þjóna flota
sovéskra fiskiskipa sem haldið er úti við veiðar í
sunnanverðu Kyrrahafi. Viðræður standa nú yfir
milli landanna og hefur verið rætt um aðstöðu fyrir
50 sovésk fiskiskip. Sovétmenn sækjast ekki eftir
veiðiheimildum í ástralskri lögsögu en skipa-
smíðastöðvar og fiskvinnslufyrirtæki gætu haft
verulegan hag af þjónustu við skipin. Sumir eru
hræddir við þessi faðmlög við rússneska björninn
en þeim hefur verið bent á að hafnir í Kanada og
Bandaríkjunum veiti sovéskum skipum viðlíka
þjónustu án þess að þeim verði sjáanlega meint
af.
BANDARÍKIN Fiskeldisfyrirtæki í Washington-
ríki í Bandaríkjunum hefur stefnt norskum fiskeld-
isfyrirtækjum fyrir rétt og ákært þau um að vinna
að því að koma sér upp einokunaraðstöðu á
markaði fyrir eldisfisk í fylkinu. í ákæruskjalinu er
talinn upp fjöldi fyrirtækja sem sögð eru að mestu
eða öllu leyti í eigu norskra aðila og hafi þau með
sér samráð sem brjóti í bága við löggjöf ríkisins
jafn sem alríkislög um auðhringamyndun og sam-
keppnishætti. Farið er fram á milljónir dollara í
skaðabætur og að fyrirtækin verði svipt rekstrar-
leyfi í Washington-ríki.
Fyllingarefni
Húsbyggjendur
Höfum til afgreiðslu
fyrsta flokks sjávar-
efni til fyllingar í
grunna, brautir og
skurði, bæði harpað
og óharpað. Efnið er
frostfrítt, hreint og
þjöppunareiginleikar
hinir ákjósanlegustu.
Opið:
Mánud.-föstud. 7:30-18:00
laugard. 7:30-17:00.
Lokað 12:00-13:00
Efnið, sem engan svíkur
BJÖRGUN H/F
Sævarhöfða 13 - Sími 681833
Verktakar
Húseigendur