Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Page 29
Bjamavík. an er eðlilegt að spyrja, þegar hann hugsar til baka, hvor oft hafi verið blíða og mokfiskrí? „Það eru alla vega dagarnir sem ég man best eftir. Vissulega var stundum lítið fiskirí og leiðinleg veður, það er bara þannig að mað- ur man betur eftir góðu dögunum.” Þegar Guðjón A. Kristjánsson var forseti fór hann stundum til sjós, heldur þú að þú gerir það einnig? „Já, ég vona að ég fái einhver tækifæri til að viðra mig. Reyndar er ég viss um að starf forseta sé fullt starf, en nota bene, kjörtíma- bilið er ekki nema tvö ár.” Grétar Mar byrjaði skipstjóraferilinn rúmlega tvítugur á 15 tonna bát, Bjarnavík. Hann lauk námi við Stýrimannaskólann þegar hann var tvítugur. Með Bjarnavík var hann í tvö ár, þeir voru bæði á handfærum og netum. - „Þetta var skemmtilegur tími og við fiskuðum vel. Ég fór síðan á stærri bát, Sigurjón, sem var 75 tonn, og okkur gekk vel á hann. En ég átti hlut í báðum þessum bátum og með Sigurjón var ég í fjögur ár. Eftir það tók ég við Barðanum, sem síðar strandaði við Ondverðarnes, og síðan tók ég við Sæborginni sem ég var með í níu ár.” Ég man að afli þinn á Sæborginni vakti athygli, þú fiskaðir mjög vel á hana, eldd rétt? „Jú, ég var heppinn. Besta vertíðin var um eitt þúsund tonn. Sæborgin bar nafn með réttu, þetta var góður bátur og sannköll- uð sjóborg. Það er nokkuð merkilegt að Bjarnavíkin fórst við Eyr- arbakka, Barðinn við Öndverðarnes og Sæborgin í Síldarsmug- unni. Þessir þrír bátar fórust sem sagt allir eftir að ég hætti á þeim. Þegar ég hætti á Sæborginni var ég eina vertíð með 75 tonna bát, Sigurvin Breiðfjörð, en hann hét lengst af Geir og var gerður út frá Reykjavík. Síðar tók ég við Bergi Vigfúsi, áður Skógey sem var keypt frá Höfn, og var með hann í 27 mánuði og ftskaði 5.700 tonn á hann, allt í net. Þetta er mesti afli sem ég hef fengið. Á einni vertíðinni fengum við 1.360 tonn af slægðu. Það var svo mikill fiskur að þetta var tiltölulega létt, það er að fiska þetta. Auðvitað var mikil vinna við að skvera þessu af, gera að og allt sem því fylg- ir. Síðar var keyptur stærri bátur, Keflvíkingur, sem var líka látinn heita Bergur Vigfús. Við fórum á loðnu og síld á honurn og bara eina stutta vertíð.” Hvernig var fyrir netaskipstjórann að fara á nótaveiðar? „Það var fínt. Við vorum loðnukvótalausir og urðum að leigja til okkar allan kvóta og fengum yfir tíu þúsund tonn á skömmum tíma.” Þegar sldpstjórar eru spurðir hvaða veiðarfæri þeim hafi þótt skemmtilegast er svarið oftast að það séu nótaveiðar. „Ég get fallist á það, en þá þurfa veiðarfærin að vera góð. Á nóta- veiðum skiptir það öllu máli, en ég kynntist hvoru tveggja. Nóta- veiðar eru skemmtilegar og ég var talsvert á þeim hér áður fyrr og áður en ég fór í skólann, það má segja að ég hafi verið alinn upp í Norðursjónum.” Ákvað aldrei að verða sjómaður Það er ljóst að þú fórst snemma til sjós, varst þú ungur þegar þú ákvaðst að verða sjómaður? Sjómannablaðið Víkingur 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.