Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Síða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Síða 46
Konráð Gíslason Konráð Gíslason fæddist í Hafnarfirði 10. október 1903. Hann lést á umönnunarheimilinu Skjóli við Kleppsveg aðfaranótt 26. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Málfríður Jóhannsdóttir, f.1.1.1883, d. 29.4.1960, og Gísli Gunnarsson, kaupmaður í Hafnarfirði, f. 14.11 1876, d. 20.12.1962. Konráð átti sex yngri hálfsystkini, Sverri, Sigurð, Gunnar, Málfríði, Ólaf og Eirík, sem öll eru látin. Hann lauk prófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og síðan prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Fáeinum árum seinna hélt hann til Bretlands til náms í kompásasmíði. Hann hóf síðan störf í þeirri grein undir lok ársins 1928 og rak eigið kompásaverkstæði allt til ársins 1987. Konráð var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Bertha Albertsdóttir, f. 22.10.1903, d. 9.12.1935. Eignuðust þau eina dóttur, Berthu skrifstofustúlku en maður hennar er Jón B. Eysteinsson. Hinn 16. ágúst 1940 kvæntist Konráð Guðrúnu Svövu Guðmundsdóttur, f. 5.11. 1910, d. 13.11.1993. Lengst af bjuggu þau hjónin á Seltjarnarnesi en síðan í Úthlíð 4 í Reykjavík. Börn Konráðs og Guðrúnar Svövu eru Málfríður píanókennari, Guðlaug prófarkalesari, maki Örnólfur Örnólfsson, og Guðmundur stýrimaður og kompásasmiður, maki Guðmunda Andrésdóttir. Barnabörn eru sjö og barnabörnin eru níu. Konráð Gíslason var framarlega í þeirri sveit manna sem stóð að stofnun Farmanna- og fiskimannasambands íslands árið 1937. Á 50 ára afmæli FFSÍ árið 1987 birtist viðtal í Víkningum sem Sveinn Sæmundsson átti við Konráð af þessu tilefni. Þar segir Konráð meðal annars um tildrögin að stofnun Farmanna- og fiskimannasambandsins: „Ég var um þessar mundir formaður í Skipstjóra- og stýrimannafélagi Reykjavíkur. Með mér í stjórninni var Kristinn Stefánsson, gamall skipsfélagi og vinur. Ég man ekki hvor okkar átti hugmyndina, en það kom í minn hlut að mæla fyrir tillögu á fundi í félaginu okkar þess efnis að stofnað yrði samband sjómanna, sem einnig gæfi út málgagn. Á Reykjavíkursvæðinu voru starfandi þrjú félög skipstjóra og stýrimanna og okkur fannst að krafta þessara félaga yrði að sameina til hagsbóta fyrir sjómenn. Hugmyndin var í fyrstu þannig að í þessu fyrirhugaða sambandi yrðu allir sjómenn, yfirmenn jafnt sem undirmenn. Fyrir því reyndist ekki hljómgrunnur, ýmsir álitu að þar sem undirmenn væru fleiri myndu þeir taka öll ráð í sínar hendur og þar með yrðum við yfirmenn áhrifalaus minnihluti." Konráð þrosti að þessu síðasta en hélt svo áfram: „Tillögu okkar um stofnun sambands var vel tekið og hún samþykkt í Skipstjóra- og stýrimannafélagi Reykjavíkur. Við skrifuðum því næst öllum félögum yfirmanna og boðuðum til stofnfundar. Flestir tóku þessu vel og voru jákvæðir. Nokkurrar tregðu gætti hjá Vélstjórafélagi íslands." ■ 46 Sjómannablaðið Víkingur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.