Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Blaðsíða 78

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Blaðsíða 78
M. Sigurðsson ehf. Nýr ræsibúnaður sem lækkar rafmagnsreikninga Innflutnings- og þjónustufyrirtækið M. Sigurðsson ehf. vill að vekja sérstaka athygli á ræsibúnað frá Powerboss, en nokkur íslensk fyrirtæki hafa þegar fest kaup á Powerboss búnaði. Þennan búnað má setja við rafmótora af öllum stærðum og gerðum. Honum er ætlað ræsa og stöðva mót- ora mjúklega ásamt því að stýra rafmagni inn á mótorana sem sparar um leið rafmagn og gerir einnig spólurofa óþarfa með öllu. Ræsibúnaðurinn eru framleiddur í Bretlandi en var upphaflega þróaður í bandarísku geimferðastofnuninni NASA. Það er engin skreytni að halda því fram að búnaðurinn spari raforku og dragi þar með úr kostnaði í rekstri. Til dæmis var 55 kw ræsibúnaður settur upp í fyrirtæki suður með sjó fyrir nokkru. Reynslan bendir til þess að raforkunotkunin hafi minnkað þar um allt að fimmtung og að tækið borgi sig upp á innan við tveimur árum. Dæla sem gleypir allt M. Sigurðsson ehf. kynnir einnig til sögunnar dælur frá Vaughan. Framleiðandinn tekur reyndar svo djúpt í árinni í eigin kynningarefni að segja að nánast allt geti farið í gegnum dælurnar án þess að þær stíflist. Á myndbandi má sjá menn henda frá sér spýtum, fatnaði, flöskum, dósum og heilum kjúklingum þar sem á að dæla og þetta skilar sér allt út úr dælunni góðu! Eiginlega má segja að þessi búnaður sé dæla og kvörn í sama stykkinu og hann er að sjálfsögðu sérlega hentugur þar sem lítill vökvi er í því sem á að dæla frá einum stað til annars. Þessar dælur eru t.d. mjög vinsælar i Banda- ríkjunum, þar sem aðrar dælutegundir hafa gefist upp og stífl- ast. Tæki og vélar frá Kóreu og Noregi M. Sigurðsson er umboðsaðili á íslandi fyrir norska fyrir- tækið ODIM sem framleiðir glussatæki, háþrýstiþvottastöðvar, tjakka, vinnslulínur fyrir frystitogara og pökkunarlínur svo eitt- hvað sé nefnt. Suður-kóereska fyrirtækið DAEWOO er vel þekkt á íslandi fyrir bfla, gröfur, tölvubúnað og fleira en nú bætir M. Sigurðs- son ehf. við báta- og skipavélum á þann lista. DAEWOO framleiðir allt að þúsund hestafla skipa- og bátavélar sem á- stæða er til fyrir útvegsmenn að kynna sér vel. Þess má geta að M. Sigurðsson ehf. hefur tryggt verðandi eigendum Da- ewoo véla á íslandi viðhalds- og viðgerðarþjónustu hjá fyrir- tækinu Framtak hf. í Hafnarfirði. ÓSONTÆKI, AUSTURSKILJUR, BINDIVÉLAR Eigendur M. Sigurðsson ehf. eru þeir Magnús Sigurðsson vélfræðingur og Björn Sveinbjörnsson rafvirki. Magnús er framkvæmdastjóri, Björn er sölustjóri. Þeir koma víða við í innflutningi og þjónustu, eins og upptalningin hér að framan gefur sterklega til kynna. Ósontæki frá norska fyrirtækinu B-Pro í Noregi eru notuð til að sótthreinsa vatn og loft á nýjan og umhverfisvænan hátt. Spara má sápuefni í þrifum og klór i sundlaugum. Þessi tæki eru framleidd í ýmsum stærðum og gerðum bæði fyrir vatns- og lofthreinsanir. Austurskiljur frá World Water Systems hreinsa sjó í kjalsogi skipa áður en honum er dælt aftur í hafið. Einnig framleiða þeir búnað sem nota má til að hreinsa sjó og gera að drykkj- arvatni. Bindivélar frá Cyklop eru notaðar við pökkun í kassa um borð í skipum. Icedan í Hafnarfirði flytur vélarnar inn og selur en M. Sigurðsson veitir nauðsynlega viðhaldsþjónustu. ■ 78 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.