Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Blaðsíða 52
Hvernig maður ertu?
Engir okkar eru eins, hver og einn hefur sín sérkenni, bæði
hvað varðar útlit og hætti. Hér á eftir er persónuleikapróf
sem eingöngu er ætlað karlmönnum, og kannski einstaka
konu.
1. Þú skerð þig í fingur svo úr blæðir. Hvað gerir þú?
A: Þú setur plástur yfir sárið.
B: Þú þurrkar blóðið í buxnaskálmina.
C: Þú sýgur blóðið.
2. Þú vaknar og ert ekki hress. Hvað gerir þú?
A: Þú nærð í rasshitamæli og mælir þig.
B: Þú hringir í vinnuna og segist ætla að sjá til hvenig þú
verður um hádegi.
C: Þú ferð í vinnuna.
3. Þú ert í verslun og ert að borga við kassann. Það er
ung og snyrtileg kona að afgreiða þig, þú þarft að prumpa.
Hvað gerir þú?
A: Þú heldur í þér.
B: Þú prumpar og biðst afsökunar.
C: Þú lyftir lærinu og prumpar.
4. Þú ert að pissa og hluti bununar fer framhjá. Hvað
gerir þú?
A: Þú þurrkar upp eftir þig.
B: Þú lætur sem ekkert sé.
C: Þú þurrkar bleytuna í sokkinn.
5. Þú ert að borða. Hvað gerir þú þegar þú hefur fengið
nægju þína:
A: Þakkar fyrir þig.
B: Bætir á þig einum diski.
C: Hættir ekki fyrr en allur maturinn er búinn.
6. Þú ferð til rakarans til að fá þér jólaklippinguna. Þegar
þú ert kominn í stólinn biður þú rakarann um?
A: Að setja í þig strípur.
B: Biður um þlástur í hárið að lokinni klippingu.
C: Segir við rakarann, klippingu takk.
7. Kona bíður þér heim. Þegar hún segir þér að gera svo
vel að ganga inn, hvað gerir þú?
A: Ert rólegur þar til þér er boðið að setjast.
B: Spyrð hvort þú megir fá þér sæti.
C: Hlassar þér í stofustólinn og setur lappirnar upp á þorð.
8. Þú ert að fara upp stiga og kemur að eldri konu sem
er að burðast með þungann poka. Hvað gerir þú?
A. Spyrð hvort þú getir aðstoðað.
B. Segist ætla að halda á pokanum fyrir konuna.
C. Þrífur pokann af konunni og æðir upp stigann.
9. Þú kemur að litlum dreng sem hefur meitt sig og
grætur. Hvað gerir þú?
A. Spyrð hvað hafi komið fyrir og hvort þú getir hjálpað.
B. Segir honum að herða sig og hætta að gráta.
C. Segir honum að hætta þessu voli og bætir við að
karlmenn gráti ekki.
10. Þú ert að borða jólamatinn og það fer sósa langt út á
kinn. Hvað gerir þú?
A. Teygir þíg í servíettuna og þurrkar sósuna.
B. Þú þurrkar sósuna með fingrinum og sleikir hann síðan.
C. Þú þurrkar sósuna í skyrtuermina.
11. Þér er gefinn viskípeli. Hvað gerir þú?
A. Þú þakkar fyrir þig og ferð með hann heim.
B. Þú þakkar fyrir þig og sýpur á.
C. Þú skrúfar tappann af, færð þér góðan sopa og hendir
tappanum.
12. Þú ert ekki einn þegar þú hefur þörf fyrir að fara á
salerni. Þú tjáir þörf sína með eftirfarandi hætti?
A. Ég þarf að fara á salerni.
B. Ég þarf að kúka.
C. Ég þarf að skíta.
A: Við hvert svar í A fæst eitt stig.
B: Við hvert svar í B fást tvö stig.
C: Við hvert svar í C fást þrjú stig.
Niðurstaðan:
12 til 18 stig: Þú ert kveif, ekki til stórræðanna, sannkölluð
skræfa og telst vart til karlmanna.
19 til 26 stig: Þú ert þessi mjúka týpa sem hefur verið haldið á
lofti. Sem sagt ekki hið sanna karlmenni, vælinn og væminn.
27 til 32 stig: Þú ert fyrirmynd annarra karlmanna, það er
annarra en þeirra sem snyrta sig sérstaklega, setja djell í hárið og
ganga með skartgripi. Sennilega ert þú draumaprins flestra
kvenna. Þær viðurkenna það samt ekki allar.
33 til 36 stig: Þú ert rusti og varla í húsum hæfur. Lífsmynstur
þitt er ekki til eftirþreytni og það er Ijóst að hvar sem þú kemur
veldur þú vonPrigðum. Leitaðu hjálpar.
52
Sjómannablaðið Víkingur