Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Qupperneq 61

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Qupperneq 61
stöðu hans við bremsuna. En þá breyttist ástandið á hvalbaknum skyndiiega úr tuski í hrein slagsmál, í átök sem erfitt er að lýsa í einstökum atriðum því allt gerðist með skjótum og skipulagslaus- um hætti. Eftir að Rafn hafði losað mig við manninn reyndi ég að einbeita mér að því að hífa inn akkerið. Ég var búinn að kúpla akker- istromlunni inn og var að losa upp á bremsunni þegar allt í einu var þrifið í slönguna sem hékk við úlnlið minn. Tveir menn höfðu náð tökum á slöngunni og drógu mig með valdi frá vindunni án þess að ég kæmi nokkrum vörnum við. Ég spyrnti við fótum, bar vinstri höndina fyrir mig, en allt kom fyrir ekki. Ég reyndi ítrekað að losa mig við slönguna, en mér tókst ekki með nokkru mód að smeygja lykkjunni fram af hendinni meðan mennirnir nánast hlupu með mig eins og hund í bandi fram og aftur um hvalbak- inn. Þeir gættu þess vandlega að gefa mér engan slaka og ég hafði haft lykkjuhelvítið allt of þröngt. Slagsmálin voru í algleymingi, áhöfn togarans reyndi að flæma okkur ofan af hvalbaltnum, en við streittumst allt hvað við gátum á móti til að halda fengnum hlut. I einni ferð okkar Bretanna um hvalbakinn þar sem við stigum stífúdans við stjórnborðshornið, gafst mér loks gullvægt færi. Ég gaf skyndilega eftir, hljóp undir þá félaga og hrinti þeim út í horn rekkverksins. Þeir reyndust óvið- búnir þessu áhlaupi og handleggir okkar féllu niður með síðum. Ég greip með vinstri hendinni í rekkverkið að baki þeim og þrýsti mér eins fast að þeim og mér var framast unnt. Á meðan smokraði ég hægri hendinni upp úr lykkjufjandanum. Mér létti, ég var frjáls og loksins laus úr þessari heimatilbúnu hnappheldu. Ég sneri mér strax að vindunni og veitti því athygli að hik var komið á togara- liðið. Sumir höfðu þá þegar yfirgefið hvalbaldnn og voru komnir niður á þilfar, en nokkrir menn héldu áfram þófi á hvalbaknum og þvældust fyrir við hliðið. Engan bilbug var hins vegar að finna á þeim félögum mínum, Guðjóni og Rafni, og ég gat ekkt betur séð en að Guðjón væri skeinuhættur Bretunum, enda vanur fætingi úr Eyjum og víðar. Það kom skipun frá brú togarans og í einni svipan hvarf allt lið- ið af hvalbaknum og strollan Iá aftur á skip. Þegar ég kom að vind- unni var gufan horfin og engan reyk lagði lengur frá glíðirnum. Það var svo sem auðséð hvað gerst hafði, gufústreymið frá katlin- um hafði verið tekið af. Ég kallaði yfir í Maríu J úlíu, sem lét reka örskammt frá, og bað um járnsög eða meitilhamar og sleggju. Ég fékk þau fyrirmæli að fara aftur í vélarrúm og kanna ástandið þar, á meðan verkfærin væru tekin til. Ég hljóp niður af hvalbaknum, aftur bakborðsganginn og aftur á skip. Þegar ég var á leið inn í keisinn sá ég hvar vélstjórinn af Óðni sat á afturpollanum og hélt um kviðinn. Hann var greinilega sárkvalinn og háseti af Óðni stóð við hlið hans og hlúði að honum. Ég spurði þá félaga hvað hefði komið fyrir og hvort vélstjórinn hefði meitt sig. Hásetinn svaraði að vélstjórinn hefði fengið spark í nárann frá einhverjum úr áhöfn togarans. Ég spurði hvar Kristján bátsmaður væri og hásetinn kvaðst hafa séð hann síðast niðri í vélarrúmi. Ég vatt mér inn í keisinn, hægt var að ganga í gegnum hann María Júlía þvert yfir á stjór og eins fram í skip. Ég hélt inn ganginn og ská- skaut mér á milli manna sem stóðu meðfram veggjum og í dyrum. Hurð stóð í hálfa gátt fyrir enda gangsins og sá fram í vélarrúmið. Þangað hélt ég rakleitt og af grindinni, fyrir innan dyrnar, renndi ég mér á stigahandriðinu niður á vélarrúmsgólf. Fyrir framan miðja vél stjórnborðsmegin stóð Kristján bátsmaður og karpaði við þrjá menn. Beljaki faðmaði að sér lárétt hjól sem var áfast vél- inni, en hinir tveir stóðu í vegi bátsmannsins að hjólinu. Þegar ég kom á fljúgandi handskriði niður stigann kom ókyrrð á mennina sem staðið höfðu í vegi Kristjáns, og hvarf annar maðurinn fram í ketilrúm en hinn dró sig upp. Ég spurði bátsmanninn hvernig gengi, en hann kvaðst ekki enn hafa komist að glíðirhjólinu og benti í áttina til beljakans. Maðurinn sem Kristján benti á var bæði stór og þrekinn, og berir handleggirnir, loðnir og flúraðir mynd- um, sýndust eins og armar á górillu. Það var alls ekki árennilegt að hefja átök við þennan risa og ég hikaði. _Við verðum að fjarlægja mannskrattann með einhverju móti frá vélinni, öðruvísi náum við ekki valdi á togaranum," sagði bátsmaðurinn af þunga. Ég hljóp til risans við hjólið og reyndi að ýta honum frá, en hann bifaðist ekki frekar en jarðfast bjarg. Ég réðst þá að risavöxnum krumlun- um sem krepptust um hjólið og ætlaði að rétta úr fingrunum en fékk engu áorkað. Þeir gátu þess vegna verið samgrónir stálinu. Þá var allt í einu þrifið í öxl mína og mér svipt til hliðar. _Þetta hel- vítis nudd þýðir ekkert, Iáttu mig sjá.“ Og í sömu andrá stóð Krist- ján fyrir framan mig með hramminn á lofti og lét slöngubútinn ríða með heljarafli þvert yfir bera handleggi beljakans. Það urðu snögg viðbrögð, maðurinn kippti að sér höndum og sleppti tökunum á hjólinu. Mér brá við þegar ég sá eldrauðar rák- ir spretta fram á framhandleggjum risans. Hann hörfaði í keng frá hjólinu með armana hálfkreppta fyrir sér og lét fallast niður á bekk úti við síðu. Kristján var samstundis búinn að taka stöðu hans við glíðirhjól- ið, sem hann tók að færa ýmist rétt- eða rangsælis, jafnframt sem hann færði stöng á vélinni fram og aftur. Ég sá á viðbrögðum vél- Sjómannablaðið Víkingur 61
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.