Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1999, Blaðsíða 82
Kælismiðjan Frost
Brýtur ísinn með
Mjög mikill áhugi hefur verið á íslausnum frá Frosti og
Landsmiðjunni eftir íslensku sjávarútvegssýninguna. Fjöldi fyr-
irspurna hefur borist víðs vegar að og eru enn að berast.
Frost og Landssmiðjan hafa á skömmum tíma náð að stilla
saman sína strengi og er nýtt heimasíðuform til merkis um
það. Krapaísblandarinn FIB-1000 hefur verið notaður með
frábærum árangri við útflutning á ferskum fiski i samstarfi við
Skipaþjónustu Suðurlands og ísberg Ltd í Fiull. Nú er að hefj-
ast framleiðsla á annari stærð af vökvaísblandaranum sem
ber nafnið FIB-500. Þessi stærð af blandaranum hentar eink-
ar vel í minni skip og vinnslur. ísvél framleiðir beint í FIB-500
blandarann og þaðan er krapanum dælt beint í geymslutank.
Á þennan hátt er hægt að velja ísþykkt krapablöndunnar á
einfaldan hátt með stjórnun innblöndunar. Með einu hand-
bragði er hægt að fá hefðbundin ís beint frá ísvélinni. Þessi
sveigjanleiki, ásamt miklu rekstraröryggi gera þessa lausn
mjög áhugaverða fyrir fiskvinnslu -og útgerðaraðila.
Ný kerfi
Nýlega var tekið í notkun nýtt krapaískerfi hjá ísfélagi Vest-
mannaeyja og er það að sögn Jóns Ólafs Svanssonar fram-
leiðslustjóra að skila mjög góðum árangri í þeirra vinnslu. Er
krapaísnum dælt frá FIB-11000 tank til fjölda sjálfvirkra af-
hendingarstöðva. Sjálfvirk afhending er að Marel flokkara eftir
hausun, við síldarflokkara og við lageringu síldar og flaka til
útflutnings. Mikill vinnusparnaður fellst í notkun kerfisins og er
kæling hráefnisins í vinnslunni nú mun markvissari en áður.
Meiri sveigjanleiki gefst við geymslu og biðtími í vinnslu veld-
ur ekki hitasveiflum í hráefninu. Engin vandkvæði eða tafir
skapast við vélflökun og innmötun á fiskvinnsluvélar eins og
gerst getur við hefðbundna ísun, þar sem krapaísinn er mjög
fínkornóttur. Búnaðurinn uppfyllir allar þær kröfur sem til hans
voru gerðar og lofar góðu fyrir komandi loðnuvertíð.
Hjá Haraldi Böðvarssyni á Akranesi hefur nýlega verið tekið
í notkun FIB-1000 krapaískerfi með sjálfvikum afhendingar-
stöðvum. Kerfið tengist inn á Marel flæðilínur og skammtar
vökvaís sjálfvirkt inn í vinnsluna.
Tvö FIB-1000 kerfi eru nú á leið til Skotlands og er mikill á-
hugi hjá uppsjávarvinnslum og fiskeldisfyrirtækjum á þessari
nýju tækni. Þetta eru stór fyrirtæki sem vinna mikinn afla á
degi hverjum. Það sem helst heillar menn er það mikla magn
af krapaís sem kerfin afkasta sem og mögluleikar á stillanlegu
saltstigi og ísþykkt blöndunnar.
Útgerðaraðilar eru að skoða þessa tækni með skipin í
huga, þ.e. að framleiða ís um borð og framleiða krapann í FIB
kerfunum. Nú þegar hefur Samherji keypt tvö kerfi sem koma
til lands í nýjum skipum þeirra á næsta ári.
Kælismiðjan Frost og Landssmiðjan stuðla með þessari
nýju ístækni að enn betri lausnum við kælingu og meðhöndl-
un hráefnis í útgerð og fiskvinnslu. Krapaísinn skilar mun
betra hráefni í gegnum vinnsluferlið, án mikils tilkostnaðar eða
aukins vinnuafls.
Með krapaísnum er ísinn brotinn í tvennum skilningi. Því
eru Kælismiðjan Frost og Landssmiðjan í fararbroddi með ís-
lenska framleiðslu á nýrri krapaísöld. ■
82
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR