Náttúrufræðingurinn - 2007, Blaðsíða 74
Náttúrufræðingurinn
Kristín Svavarsdóttir
Skýrsla stjórnar
Hins íslenska náttúrufræðifélags
FYRIRÁRIÐ 2004
Félagar
Félagar í Hinu íslenska náttúru-
fræðifélagi sem jafnframt eru áskrif-
endur Náttúrufræðingsins voru
1.212 í árslok 2004 en voru 1200 í
byrjun ársins. Skipting félagsmanna
var þannig: 10 heiðursfélagar, 5
kjörfélagar, 8 ævifélagar, 946 al-
mennir félagar innanlands, 124
stofnanir innanlands, 35 félagar og
stofnanir utanlands, 64 skólafélagar
og 20 einstaklingar með hjóna-
áskrift. A árinu gengu 55 manns í
félagið en 32 skráðu sig úr því,
fimm létust og sex voru teknir af
skrá af öðrum ástæðum, alls 43
félagar. Af nýjum félögum voru 22
námsmenn, eða 40% nýskráninga.
STJÓRN OG STARFSMENN
Arið 2004 var stjórn félagsins skip-
uð þannig: Kristín Svavarsdóttir
formaður, Helgi Torfason varafor-
maður, Kristinn J. Albertsson gjald-
keri, Hilmar J. Malmquist ritari,
Droplaug Ólafsdóttir, Esther
Ruth Guðmundsdóttir og Helgi
Guðmundsson meðstjórnendur.
Droplaug var fulltrúi stjórnar í rit-
stjórn Náttúrufræðingsins, Esther
hafði umsjón með fræðslufundum
félagsins og Helgi Guðmundsson
hafði umsjón með fræðsluferðum.
Skoðunarmenn reikninga voru
Kristinn Einarsson og Tómas Ein-
arsson, en varamaður þeirra var
Arnór Þ. Sigfússon. Þetta var síð-
asta ár Tómasar sem skoðunar-
manns og er honum þakkað kær-
lega fyrir farsæl störf í þágu félags-
ins. Utbreiðslustjóri félagsins var
Erling Ólafsson og hafði hann um-
sjón með dreifingu Fréttabréfsins
og Náttúrufræðingsins auk þess að
hafa umsjón með félagatalinu. Álf-
heiður Ingadóttir var ritstjóri Nátt-
úrufræðingsins.
Haustið 2002 skipaði umhverfis-
ráðherra nýtt hollustuháttaráð til
fjögurra ára og var Hákon Aðal-
steinsson skipaður í ráðið fyrir hönd
Hins íslenska náttúrufræðifélags og
Margrét Hallsdóttir til vara. Ráðið
var lagt niður haustið 2004 en fram
að því hafði það starfað með svipuðu
sniði og áður. Lögbundið hlutverk
ráðsins var að gefa umsagnir um
gjaldskrár fyrir Heilbrigðisnefndir
sveitarfélaganna. Amór Þ. Sigfússon
sat fyrir hönd Hins íslenska náttúru-
fræðifélags í dýravemdarráði og er
hann jafnframt formaður ráðsins. I
nokkrum nefndum umhverfisráðu-
neytisins situr einn sameiginlegur
fulltrúi frjálsra félagasamtaka, þar
með talið HÍN. Ein slík nefnd er ráð-
gjafamefnd um málefni Vatnajökuls-
þjóðgarðs og sat Sigrún Helgadóttir í
nefndinni fyrir hönd félaganna.
Nefndin lauk störfum í byrjun ársins.
Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri
Landverndar, var skipaður sem
sameiginlegur fulltrúi frjálsra félaga-
samtaka í samráðshópi um undir-
búning Umhverfisþings 2005.
Meginviðgangsefni Umhverfisþings
2005 er sjálfbær þróun og fram-
kvæmd og efling stefnumörkunar
stjómvalda á því sviði.
ÁÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins fyrir árið 2004
var haldinn laugardaginn 26. febrú-
ar 2005 í fundarsal Náttúrufræði-
stofu Kópavogs, í Safnahúsinu í
Kópavogi. Fundarstjóri var kosinn
Hreggviður Norðdahl og fundarrit-
ari Þóra Hrafnsdóttir. Fundinn sátu
20 manns. Formaður flutti skýrslu
stjórnar og gjaldkeri kynnti árs-
reikninga félagsins, sem voru sam-
þykktir af fundarmönnum án
athugasemda.
Úr stjórn félagsins áttu að ganga
Esther Ruth Guðmundsdóttir,
Helgi Torfason og Hilmar J.
Malmquist og gáfu þau öll kost á
sér til áframhaldandi stjórnarsetu
og voru endurkjörin. Tómas Einars-
son gaf ekki kost á sér til endurkjörs
skoðunarmanns og voru Arnór Þ.
Sigfússon og Kristinn Einarsson
kjörnir skoðunarmenn reikninga og
Hreggviður Norðdahl varamaður
þeirra.
Hilmar J. Malmquist gerði grein
fyrir þremur ályktunum sem stjórn-
in lagði fyrir fundinn og voru þær
samþykktar.
1. Náttúruhús (náttúruminjasafn):
„Aðalfundur Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags (HÍN), haldinn 26.
febrúar 2005 í Kópavogi, ítrekar
fyrri ályktanir aðalfunda HIN frá
28. febrúar 2004, 1. mars 2003, 2.
mars 2002, 24. febrúar 2001, 26.
febrúar 2000, 27. febrúar 1999,17.
febrúar 1996, 11. febrúar 1995 og
29. febrúar 1992 um málefni Nátt-
úruhúss (náttúruminjasafns) á
landsvísu á höfuðborgarsvæðinu.
HIN harmar hve treglega hefur
gengið að koma þessu brýna máli
heilu í höfn og hvetur hlutaðeig-
andi aðila til að gera gangskör að
því að efna hið fyrsta á myndar-
legan hátt til sýningar- og
kennslusafns á höfuðborgarsvæð-
142