Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2007, Blaðsíða 72

Náttúrufræðingurinn - 2007, Blaðsíða 72
Náttúrufræðingurinn Ritfregnir_____________ Hjörleifur Guttormsson og Sigurður Blöndal Hallormsstaður í SKÓGUM Náttúra og saga höfðubóls og þjóðskógar Mál og menning, Reykjavík 2005 (351 bls.)- Aðalhöfundar bókarinnar eru höfð- ingjarnir Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur og fyrrum alþingismaður, og Sigurður Blöndal, fyrrum skógræktarstjóri, en Hjörleifur er jafnframt ritstjóri. Aðrir höfundar efnis eru þau Guðný Zoéga, fornleifafræðingur, Gunnar Guttormsson, vélfræðing- ur, Haukur Jóhannesson, jarðfræð- ingur, Loftur Guttormsson, sagn- fræðingur, Sif Vígþórsdóttir, fyrr- verandi skólastjóri grunnskólans á Hallormsstað, Sigrún Hrafnsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans á Hallormsstað, og Þór Þorfinnsson, skógarvörður Austurlands. Bókin fjallar um Skóga, sem er svæðið austan Lagarfljóts, frá Valla- neshálsi í norðri til Gilsár í suðri. Bókinni er skipt upp í átta kafla þar sem fjallað er ítarlega um staðhætti, náttúrufar, jarðfræði, fornminjar, þjóðtrú og sögu, með aðaláhersluna á höfuðbólið Hallormsstað, skóla- setrið og vöggu skipulagðrar skóg- ræktar á Islandi. I bókinni eru mjög fróðleg kort sem tengjast svæðinu og einnig fjölmargar ljósmyndir og annað myndefni sem eykur gildi hennar sem almenns fræðirits. Bók- in hefur hlotið opinbera viðurkenn- ingu sem slík, m.a. menningarverð- laun DV í flokki fræðirita árið 2006. Við sem höfum verið svo heppin að fá að una við leik og störf á þessu svæði vitum að Hallormsstaður og Skógar eru ein af perlum íslenskrar náttúru, ekki síst fyrir þá sem áhuga hafa á lífríki og náttúrufari. Gamli Hallormsstaðarskógur var girtur af og beitarfriðaður á árunum 1905-1908 og má á margan hátt líta á hann sem eitt elsta náttúruvernd- arsvæði landsins, þó að stofnað væri til hans löngu áður en hugtak- ið þjóðgarður eða hugmyndafræði þjóðgarða varð Islendingum töm. Birkiskógurinn hefur breiðst mikið út síðan, en elstu hlutar hans, sem fengið hafa að vaxa og dafna óáreittir í heila öld, eru nú þeir íslensku skógar sem næst komast því að geta kallast frumskógar. Það er ógleymanleg reynsla að reika um elsta hluta skógarins, sem sumstað- ar er byrjaður að endurnýja sig. Þar fannst nýlega elsta lifandi tré sem vitað er um hérlendis, ríflega 180 ára ilmbjörk. Það er ekki bara skóg- urinn sjálfur heldur einnig botn- gróðurinn og allt lífríki sem vekur áhuga. Þarna kemst maður e.t.v. næst því að sjá íslenska náttúru eins og hún getur hafa litið út þegar Graut-Atli Þórisson nam Atlavík og nágrenni á 9. öld. Landnýting hefur smám saman breyst í Skógum og nú er enginn sauðfjárbúskapur lengur á svæðinu frá Vallanesi að Gilsá, að frátöldum einum bæ, Víkingsstöðum. Með því að bera saman nokkrar aðliggjandi jarðir sem hafa verið beitarfriðaðar með nokkurra áratuga millibili má með eigin augum sjá hvernig gróð- ur og annað lífríki tekur stakka- skiptum. Með bókina í hendi er auðvelt fyrir hvern sem er að kynn- ast sögu þessa svæðis og dýpkar hún mjög skilning manns á því sem fyrir augu ber. Hallormsstaður var og er vagga skógræktar á íslandi. Fyrir þau okkar sem áhuga hafa á þeim mál- um eru hinir ræktuðu skógar svæð- isins ákaflega forvitnilegir. Þar finn- ast óvenjumargar sjaldséðar trjáteg- undir, auk þess sem þar eru nokkrir elstu samfelldu skógarlundir lands- ins. Bókin rekur m.a. hundrað ára sögu trjá- og skógræktar á Hall- ormsstað og er ómetanleg heimild um þá merkilegu sögu. Þó að undirritaður beini hér at- hyglinni einkum að þeim hlutum sem snerta hans aðaláhugasvið, þá eru kaflarnir um jarðfræði og sögu Hallormsstaðar, um skólasetrin og um kvæði og myndlist sem tengjast Hallormsstað einstaklega fróðleg og skemmtileg lesning. Eins og fram kom er bókin sam- sett úr átta meginköflum, sem flest- ir eru síðan brotnir upp í marga nokkuð sjálfstæða undirkafla og box. Þessi uppbygging er bæði styrkleiki og veikleiki bókarinnar. Styrkleikinn er að þetta býður upp á mjög fjölbreytileg efnistök, sem höf- undar nýta sér mjög vel. Hér finna allir eitthvað sem sérstaklega vekur áhuga þeirra og tengist þessu vel afmarkaða svæði. Veikleikinn er um leið að stundum getur verið álitamál hvar mismunandi undir- kaflar eða box ættu að birtast. Eina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.