Náttúrufræðingurinn - 2007, Blaðsíða 6
Náttúrufræðingurinn
Arnardalur er grösugur og markast
af tveimur lágum hryggjum,
Dyngjuhálsi að austan og Amardals-
fjöllum að vestan. Jarðvegur er send-
inn og ber gróðurfarið keim af því.
Gögn
Gróðurkort og gögn úr vistgerða-
rannsóknum 1999 og 2000 voru
fengin frá Náttúrufræðistofnun ís-
lands og voru nýtt í rannsókninni
en ekki safnað sérstaklega með
hana í huga. Sumarið 2004 var aflað
nýrra gagna um vistgerðir vegna
rannsóknarinnar og er gerð grein
fyrir þeim síðar.
Gróður- og landgreining af rann-
sóknarsvæðinu var fyrst unnin árin
1968-1969 af Rannsóknastofnun
landbúnaðarins.27 Hún var endur-
skoðuð af Náttúrufræðistofnun ís-
lands 1999 og 2000 og þá unnin í
mælikvarðanum 1:25.000.26 Endur-
skoðuðu kortin voru notuð til að
staðsetja mælisnið (200 x 2 m) fyrir
vistgerðarannsóknir. Vistgerða-
flokkunin byggist á þekju og teg-
undasamsetningu gróðurs á þess-
um sniðum, þ.e. þekju háplantna,
tveggja tegunda mosa, lágplöntu-
skánar og breiskjufléttna. Gróður-
gögnin voru flokkuð með TWIN-
SPAN-aðferð28 sem er stigskipt og
skiptir gróðurfarsgögnum í flokka
út frá breytingum á tegundasam-
setningu (Sigurður H. Magnússon
o.fl., óbirt gögn). Helsta gagnrýni á
þessa aðferð er að stigskipting finn-
ist varla við náttúrlegar aðstæður
og að sitt hvorum megin við hverja
skiptingu séu mjög gróðurfarslega
lík gögn sem gætu alveg eins flokk-
ast saman.10-28 Einnig var unnið úr
gróðurgögnunum með hnitunar-
greiningu til að greina breytileika í
gróðurfari og umhverfisþáttum
innan og milli svæða.24 Lýsingar á
aðferðum við mælingar og flokkun
sniða í vistgerðir eru í skýrslum
Náttúrufræðistofnunar.24-26
Alls voru 73 mælisnið í 15 vist-
gerðum úr fyrri rannsóknum notuð
við flokkunina, 60 á Vesturöræfum
og Brúardölum og 13 í Arnardal. Af
þessum vistgerðum eru fjórar nær
eingöngu bundnar við Arnardal. í
1. töflu er sýnt yfirlit yfir þær vist-
gerðir sem flokkaðar voru á svæð-
inu, fjölda sniða í hverri vistgerð
ásamt nokkrum gróðurþáttum sem
mældir voru á vettvangi og líklegt
er að hafi áhrif á endurvarp.
Á vistgerðakorti af Vesturöræfum
og Brúardölum komu alls fyrir 22
land- og vistgerðir eftir vörpun
gróðurfélaga í vistgerðir (hér eftir
kallað gróðurfélagakort). Ekki var
hægt að fá fram allar vistgerðir
TWINSPAN-flokkunarinnar með
þessari aðferð þar sem í gróður-
lykli25 er t.d. ekki gerður greinar-
munur á melum eftir tegundasam-
setningu. Því er aðeins einn flokkur
melavista á gróðurfélagakorti af
svæðinu. Þá var ekki hægt að að-
greina giljamóavist og lyngmóavist
og eru þær því saman í flokknum
gilja- og lyngmóavist. Á gróðurfé-
lagakortinu eru einnig landgerðir
sem ekki var reynt að flokka niður
með fjarkönnunaraðferðinni, svo
sem skriður og klettar og vikravist,
og einnig nokkrar vistgerðir með
rnjög litla útbreiðslu sem engin
mælisnið voru í.
Fj arkönnunargögn
SPOT5-myndin sem notuð var til
flokkunar er frá 9. september 2002,
en hún var hnitsett og upprétt af
Spotimage. Við uppréttinguna var
notað stafrænt landhæðarlíkan frá
bandaríska hernum með 90 m
möskvastærð og 20 m hæðarná-
kvæmni (í 90% tilvika), en ekki var
notast við stýripunkta (e. ground
control points) eins og síðar var
gert, svo sem fram kemur hjá
Ingvari Matthíassyni og Kolbeini
Árnasyni.23 Könnun Landmælinga
Islands á staðsetningarnákvæmni
myndarinnar sýnir að minnsta
frávik er 0,0 m, mesta frávik er 23 m
og miðgildi 10 m.23 í SPOT5-
Vistgerð/landgerð - Habitat type Heildarþekja gróðurs - Vegetation cover (%) Gróska (þekja háplantna x hæð gróðurs) - Cover of vascular plants x vegetation height Þekja lágplöntuskánar — - Cover of cryptogamic crust (%) Þekja mosa - Moss cover Fjöldi sniða til flokkunar - Training data (N) Fjöldi sniða til sannprófunar - Test data (N)
Grasmelavist 9,6 66,2 0,6 2,8 3 2
Eyðimelavist 6,4 10,6 2,3 1,8 9 7
Víöimelavist 26,4 26,7 14 6,9 10 21
Melhólar 10 78,7 <0,1 <0,1 3
Melagambravist 76,7 63,9 30 38,9 1
Hélumosavist 63,3 70,1 26,8 27,4 7 10
Víðimóavist 89,5 777 18,1 23,6 3 4
Lyngmóavist 74,7 153,8 26,2 28 8 30
Giljamóavist 94,2 455,6 8,3 46,7 9 6
Starmóavist 92,6 284,6 9,6 53,5 5 12
Rekjuvist 90,9 140,8 18,4 60,1 1
Rekjumóavist 96,9 483,9 4,9 67,4 8 21
Lágstaraflóavist 96,7 381,6 0,8 82,2 4 15
Sandmýravist 72,8 313,5 1,1 58,3 1
Hástaraflóavist 96,7 1599,7 0 80,9 1 2
I. tafla. Megineinkenni vistgerða í gróðurþekju og grósku, samkvæmt mæiingum Náttúmfræðistofnunar íslands á vistgerðum, og fjötdi sniða sem notuð
voru til fokkunar og til að sannprófa flokkun á rannsóknarsvæðinu. - Main characteristics of habitat types in vegetation cover and quantity and
number of traíning and test data in the study area.
74