Náttúrufræðingurinn - 2001, Blaðsíða 7
2. mynd. Áður þekkt útbreiðsla flundru (eftir Muus o.fl. 1997 og Joenes & Táning 1970). -
Previously known distribution of flounder.
tegundar veiðst. Hér verður gerð grein fyrir
þeim flundrum sem veiddust frá árinu 1999
þar til í apríl 2001 og aðgengilegar hafa verið
til rannsókna.
■ EFNI OG AÐFERÐIH
Ein flundra sem veiddist í Ölfusá við Hraun
árið 1999 var rannsökuð. Hrafnkell Karls-
son, bóndi á Hrauni, veiddi flundruna í
silunganet og kom henni til Veiðimála-
stofnunar á Selfossi. Hrafnkell hafði þá um
sumarið veitt allmarga „kola“, alll að 11
stykki í einu, í silunganet. Síðla í september
sama ár voru tveir „kolar“ veiddir á stöng í
Varmá við Öxnalæk. Árið 2000 veiddust
nokkrar flundrur og fékk Hafrannsókna-
stofnunin sendar fimm. Tvær þeirra
veiddust í Ölfusá, um 1 km ofan Óseyrar-
brúar, og aðrar tvær í nágrenni hennar, í
Varmá (við Varmalæk) og í Þorleifslæk suður
af Bakka. Ein flundra veiddist það ár í
Lónsvík undan Suðausturlandi (64°19’N,
14°45’V, dýpi 27 m). Var hún sú eina sem
veiddist í sjó og auk þess sú eina sem var
„öfug“, þ.e. vinstri hliðin var dökk en
algengara er að sú hægri sé dökk á flundru.
Þá fréttist af einni sem veiddist í júlí sarna ár
í Miðhúsavatni í Breiðavíkurhreppi á Snæ-
fellsnesi, en sá fiskur var ekki rannsakaður. í
lok mars árið 2001 veiddust fimm flundrur í
Herdísarvík (63°5 l'N, 21°44’V, dýpi 11 m)
vestan Þorlákshafnar og Ölfusárósa og þar
með voru komnar sex flundrur veiddar í sjó.
Þá veiddist ein í apríl við Laxárósa í Homa-
firði. Alls voru því rannsakaðar 12 flundrur,
sex veiddar í ísöltu eða fersku vatni og sex
veiddar í sjó (1. tafla). Allir fiskarnir voru
frosnir er þeir bárust til Hafrannsókna-
stofnunarinnar. Eftir að flundrurnar höfðu
verið þíddar voru þær mældar að næsta
millimetra (heildarlengd), vegnar óslægðar,
kyn ákvarðað og kynþroskastig metið.
Kynþroskastig var metið eftir fjögurra
flokkakerfi: Stig 1 = ókynþroska fiskur, stig
2 = kynþroska fiskur, kynkirtlar geta verið á
ýmsum þroskastigum, þó ekki stigum sem
jafngilda 3. og 4. stigi, stig 3 = fiskurinn er að
hrygna, hrogn/svil rennandi, og slig 4 =
85