Náttúrufræðingurinn - 2002, Qupperneq 68
3. mynd. Salteyðimörkin í Utah var einu sinni innhaf Ljósm.
corbis.com.
■ EFNASAMSETNING
SjÁVAR
Selta sjávar er skilgreind sem grömm af
uppleystu salti í hverju kílógrammi af sjó.
Helstu jónir sjávar hafa styrkleika yfir einn
milljónastahluta (ppm), þ.e. yfír0,001%c. Þær
eru 11 talsins (2. tafla) (Butchero.fi. 1998).
Snefilefni sjávar eru þau efni sem hafa
styrkleika undir einum milljónastahluta.
Dæmi um snefilefni eru mangan (Mn), gull
(Au) og járn (Fe). Snefilefnin eru nauð-
2. tafla. Helstu jónir i' sjó.
Helstu iónir ísjó Styrkur í %o (g/kg sjór)
Cl' 18,980
Na+ 10,556
so4-2 2,649
Mg+2 1,272
Ca+2 0,400
K+ 0,380
HCO 0,140
Br 0,065
h3bo3 0,026
Sr+2 0,013
F 0,001
synleg fyrir lífverur
sjávar, jafnvel þótt þau
séu í litlu magni. Katjónir
eins og Na+, K+, Ca+2, og
Mg+2 eru að mestu leyti
frjálsar jónir í sjó. Hins
vegar eru anjónimar C03 2
og S04'2 bundnar að miklu
leyti. í hafinu mynda
snefilmálmar efnasam-
bönd með anjónum eins
ogOH'.
Leysni margra gas-
tegunda í hafinu stjórnast
af sameindamassa þeirra.
Því þyngri sem sameindin
er, því betri verður leysni
hennar í sjó. He með sam-
eindamassa 4,003 hefur
þannig minni leysanleika
en Xe sem hefur sam-
eindamassa 131,300. Leysni gastegunda
eykst einnig við lægra hitastig. Þannig er
meira gas í yfirborðsvatni sjávar við pólana
en við miðbaug.
Leysni gastegunda í hafinu er lýst með
lögmáli Henrys.1 Af því lögmáli má sjá að
þótt efni eins og koltvíoxíð safnist fyrir í
andrúmsloftinu eykst leysni efnisins í sjó
mjög hægt. Leysni efna við kjöraðstæður
getur aldrei verið meiri en samkvæmt lögmáli
Henrys.
■ HAFSTRAUMAR
Vindknúnir hafstraumar eru í nokkur
hundruð efstu metrum sjávar og eru
aðallega láréttir straumar. Hafstraumarnir
renna ekki alltaf í sömu stefnu og meðal-
vindurinn blæs vegna núnings á milli
vatnsmassa. Þannig getur sjórinn streymt
næstum hornrétt á meðalvindstefnuna.
Snúningur jarðar hefur einnig áhrif.
Niðri í hafdjúpunum eru hins vegar
1 Lögmálið er eftirfarandi:
P = K * c
x h x
þar sem Kh er fasti Henrys, P er þrýstingur
efnisins í andrúmsloftinu og cx er styrkur uppleysts
gass í hafinu.
242