Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 8

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 8
Imyndinni ÓGNAÐ Á undanförnum árum hefur tekist góð samvinna ríkja á norðurslóð um rannsóknir og vernd lífrfkis þar, kennd við bæinn Rovaniemi í Finnlandi þar sem á árinu 1991 var gerð samþykkt um umhverfis- verndaráætlun fyrir norðlægar slóðir, Arctic Environmental Protection Stratigy, AEPS. íslendingar hafa tekið virkan þátt í þessu samstarfi og hýsa nú á Akureyri skrifstofu CAFF, Conservation of Arctic Flora and Fauna, (Verndun plantna og gróðurs á norðurslóð) sem er einn fjögurra vinnuhópa Rovaniemi-samkomulagsins. Lífríki á norðurslóð er tiltölulega ósnortið. Þær hættur sem að því steðja má flestar rekja til mengunar frá iðnríkjum nær og fjær og verður ekki bægt frá nema með samstilltu átaki á alþjóðavettvangi. Hér er einkum átt við þrávirk lífræn efni sem safnast upp í fituvef dýra efst í fæðukeðjunni og geta valdið mönnum heilsutjóni. Eyðing ósonlagsins og gróður- húsaáhrif eru einnig vaxandi ógn við lífríki á norðurslóð en loftmengun virðist ætla að hafa víðtækari áhrif á veðurfar þar en á tempruðum svæðum og í hitabeltinu. Enn er ótalin geislavirk mengun. Tilrauna- sprengingar kjarnorkuveldanna og slysin við Thule 1968, í Tjernobyl 1986 og við Bjarnarey 1989 sýndu að plöntu- og dýralíf á norðurslóð þolir geislavirka ákomu verr en fjölbreyttara lífrrki á suðlægri slóðum. Þótt áhrifa frá kjarnorkutilraunum og jafnvel frá Tjernobyl gæti nú minna en áður er hættan enn fyrir hendi: Hafstraumar bera í sífellu geislavirkan úrgang frá kjarnorkuendur- vinnslustöð Breta í Sellafield með ófyrir- sjáanlegum afleiðingum fyrir lífríki á norður- slóð. Utbrunnið kjarnorkueldsneyti Rússa, kjarnakljúfar og geislavirkur úrgangur sem áður var varpað í hafið er nú safnað saman á landi og hefur ástandinu þar eystra verið líkt við tifandi tímasprengju. Islendingar og Grænlendingar hafa hingað til verið samtaka um að vara við þessari hættu t.a.m. geislamenguninni frá Sellafield. Það kom því verulega á óvart þegar formaður grænlensku landsstjómarinnar bauð Græn- land nýlega fram sem geymslustað fyrir úrelt kjarnavopn Bandaríkjamanna og Rússa. Þessari fráleitu hugmynd hljóta íslend- ingar að mótmæla kröftuglega og það var reyndar gert strax. Röksemdafærslan var hins vegar athyglisverð. Að sönnu var nefnd sú beina hætta sem geislamengun getur haft fyrir lífríki norðursins. Hins vegar var í greina- og leiðaraskrifum dagblaða meiri áhersla lögð á þær óbeinu afleiðingar sem þessi ráðstöfun gæti haft á sérhagsmuni ís- lendinga: sem sé það tjón sem kjarnorku- haugur á Grænlandi myndi valda á ímynd íslands sem ferðaþjónustulands og fisk- útflytjanda. Þessi afstaða er kannski tímanna tákn: Að hreinleiki norðursins sé fyrst og fremst sölu- vara - e.k. vörumerki sem við viljum vemda vegna markaða okkar erlendis. - Að við metum náttúruna „...til silfurs og seðla og köllum það raunsœi... “ svo vitnað sé í orð Sigurðar Þórarinssonar frá 1949, sem Hugi Ólafsson gerir að umtalsefni í grein sinni „Rómantík og raunsæi" í þessu hefti Náttúru- fræðingsins. Hugi fitjar í greininni upp á tfmabærri umræðu um þessi mál og varpar fram þeirri spurningu hvort „rómantísk“ hugsun í umhverfisvernd sé orðin úrelt. Svari núhver fyrir sig! Álfheiður Ingadóttir 2

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.