Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 63
4. mynd. Hlíðar Vatnsdalsfjalls
ofan við bœinn Hjallaland.
Ofan við bœinn er gil þar sem
sést í berglög seni hallar bratt
niður í Vatnsdalinn. Til hœgri
eru þykk smástuðluð hraunlög
er mynda Hjallann í Vatnsdal.
Þau lög liggja láréttar og
sýnast hafa fyllt upp í öskju. Á
bak við bœjarhúsin sést í ný-
legar skriður, en skriðuföll eru
afar tíð úr hlíðum Vatnsdals-
fjalls. - Slopes of Vatnsdals-
fjall at the Hjallaland farm.
Above the farm is a gully where
steep dipping lavas are ex-
posed. Ljósm./photo: Ágúst
Guðmundsson.
berg væri að ræða. Norðan við bæinn
Vatnsdalshóla er líparítsvæði þar sem
uppistaða hólanna sýnist vera á mörkum
þess að vera í föstum berggrunni. Auk
þess er mikið um bergganga sem telja má
af þrennum toga. Líparítið er víða frauð-
kennt og feyskið en einnig eru þar þéttar
kristallaðar bergstrýtur, svo heillegar að
vafasamt er að ætla að þær séu tilfluttar.
Segulmælingar á þessum líparítkleggjum
gáfu daufa svörun en þó jafnan veika
„rétta“ segulstefnu. Gangar, sem stefna
nær N-S, eru víða í líparítkleggjunum og
eru með greinileg samsíða blöðrubelti sem
liggja lóðrétt. Þessir gangar mældust allir
hafa „rétta“ segulstefnu. Aðrir hliðstæðir
gangar með samsíða blöðrubeltum, er
hallar mikið til ýmissa átta, reyndust
einnig hafa „rétta” segulstefnu. Þriðja gerð
bergganga er allt öðru vísi að innri gerð en
hinir fyrrnefndu, þéttara berg, stuðlagerð
öðruvísi og hallar þeim með litlum bratta
niður til austurs. Þessir gangar mældust
hafa „öfuga“ segulstefnu. Segulmæling-
arnar benda fremur til þess að á umræddu
svæði sé bergið nærri upphaflegri stöðu,
eins og það storknaði fyrir nokkrum
milljónum ára, en ekki umturnað í skriðu-
hlaupi.
Af ofansögðum athugunum ræð ég að
miðhluti hólanna (að því marki sem þeir
mynda flatvaxna sundurskorna bungu) sé
að mestu gerður úr lagmyndaðri líparít-
sambreyskju, hliðstæðri þeirri sem sjá má
5. mynd. Gedduhryggir nefnast
bratt hallandi berglög í hlíðinni
ofan við Hvamm í Vatnsdal.
Greinilega sést livernig lögin
hafa sveigst niður í Vatnsdalinn
og undir smástuðluðu lögin
sem mynda Hjallann lengst til
vinstri. - Steep dipping lavas
above the Hvammur farm in
Vatnsdalur. Left are less dipping
lavas which may be a part of a
caldera filling. Ljósm./photo:
Agúst Guðmundsson.
57