Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 19
Leitunartími (sek.)
8. mynd. Myndin sýnir niðurstöður á mœlingum viðverutíma 64 karldýra sem komu að
kúadellu í leit að maka en án árangurs og flugu í burtu. - Distribution of staytimes of 64
searching males. Measurements made at Lammi, Biological Station in Finland 1992. No
significant dijference was found betw’een large and small males ( t= 1.45, p = 0.152).
styður það fyrri niðurstöður að stóru
karldýrin séu jafn líkleg til að leita að maka
og þau litlu, á ferskum jafnt sem eldri dellum
(Hrefna Sigurjónsdóttir og Sigurður
Snorrason 1995). Sú hugmynd Parkers
(1970b) að karldýrin komi á varpstaði
óhindruð og fari þegar þau vilja virðist því
vera rétt (Parker og Maynard Smith 1987) en
annað mál er það hvar þau leita mest - í
grasinu eða á dellunni.
Þéttleiki hefur áhrif á hegðun karldýr-
anna að ýmsu leyti. Niðurstöður tengsla-
prófana sýna að þau dvelja lengur við
hvern varpstað (kúadellu) eftir því sem
þéttleikinn er meiri *, eru hlutfallslega
lengur á dellunni miðað við grasið þegar
þéttleikinn eykst1 2, hreyfa sig meira3 og
snertast meira4.
Ekki reyndist vera munur á hegðun
lítilla og stórra karla nema að tvennu leyti.
1 Kendall próf: Z = 2,42, p = 0,001
2Z = 3,22, p = 0,015
3Z = 2,43, p = 0,015
4Z = 3,56, p<0,001
í fyrsta lagi eyddu stóru karlarnir mark-
tækt meiri tíma á dellunni en þeir litlu5 og
rímar sú niðurstaða vel við það sem áður
var sagt um meðalstærð stakra karldýra á
dellum og í grasi. I öðru lagi var munur á
áhrifum aukins þéttleika á hegðun lítilla
og stórra karldýra þegar skoðað er hversu
mikið þau fara um leitarsvæðið (dellunni
var skipt í 4 svæði og grasinu í kring í 3
belti). Stóru karlarnir eru marktækt meira
á ferðinni þegar þéttleikinn eykst6 en þeir
litlu ekki7. Að öðru leyti er hegðun þeirra
litlu og stóru mjög svipuð, t.d. er ekki
marktækur munur8 á því hversu mikil bein
samskipti þeir hafa (snertast eða fara hver
upp á annan) eða hreyfa sig (hoppa upp,
ganga, fljúga) stuttar vegalengdir9. Borgia
(1980) rannsakaði hegðun karlflugna í
stofni þegar þéttleikinn var mjög lítill og
't =2,66, p = 0,010
6Aðhvarfsgreining: F = 6,366, p = 0,018
7F = 0,023, p = 0,881
8t= 1,215, p = 0,232
lJt = 4,94, p = 0,623
13