Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 17

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 17
Stærð 45 40 35 30 25 20 15 10 ♦ Stakir karlar á dellum ♦ Karldýr að makast á dellum A Karldýr að makast í grasi ♦ Karldýr með verpandi flugu ■ Kvendýr að makast á dellu ■ Kvendýr að makast í grasi ♦ Verpandi kvendýr 5 1 ■ 0 10 20 30 40 50 60 Dagar 7. mynd. Meðalstœrðir karldýra og kvendýra (mœlikvarði sami og áður) í mismunandi hópum á og við kúadellur í túninu á Hrísbrú, Mosfellssveit 1981. Marktœkur munur er á milli hópa og stœrðin eykst eftir því sem líður á sumarið. - Average sizes of males and females in different mating groups. Analysis of variance with time ofyear as a covariate revealed significant differences between male groups and that size increased with season. From top to bottom: males copulating on pats, males guarding females, males searching on pats, males copulating in the grass, females copulating in the grass, females copulat- ing on pats, females laying eggs (Hrefna Sigurjónsdóttir & Sigurður Snorrason 1995). Stærð kvenflugnanna er mun stöðugri en stærð karlflugnanna. Sennilega stafar minnkandi stærð flugna undir lok ársins í Englandi af mikilli samkeppni um fæðu meðal lirfa sem hófu ævi sína þegar rnikið var orðið af flugum í október. Ekki er unnt að segja nákvæmlega til um hvenær þær flugur sem safnað er á hverjum tíma hófu sitt æviskeið, því þroskunartíminn á lirfu- og púpuskeiði er háður hitastigi og fæðuskilyrðum og flugurnar geta lifað í nokkrar vikur. Talið er að fimm kynslóðir mykjuflugna nái að þroskast á ári á Englandi, tvær að vori, ein (fáliðuð) um mitt sumar og tvær að hausti (Parker 1970a). Eins og áður er komið fram er víðast hvar mjög lítið af flugum frá miðjum júní fram í ágúst. Fyrsta kynslóðin eftir það er að mestu stórar flugur, vegna lítillar samkeppni lirfanna um fæðu. Ekki er unnt að fullyrða neitt um fjölda kyn- slóða á ári hér á landi. Ég tel þó lfklegt að flest þau dýr sem safnað var seinni hluta sumars á íslandi hafi verið afkomendur flugna sem klöktust út eftir að hafa legið í dvala yfir veturinn. Dreifing Strax haustið 1978 kom í ljós að paraðar karlflugur sem voru við varpstaðina voru að meðaltali miklu stærri en stakir karlar lengra í burtu (6. mynd). Ekki var munur á stærð kvendýranna (Hrefna Sigurjóns- dóttir 1980). Þetta benti sterklega til að stærð hefði áhrif á hegðun karldýra. Hugsanlega koma allra minnstu karldýrin sjaldan á varpstaði. Parker (1978) sá mjög litla karla makast við kvenflugur í 11

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.