Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 22

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 22
11. mynd. Líffrœðikennarar að skoða mykjuflugur á námskeiði á vegum Samlífs, samtaka líffrœðikennara, og KHÍ í Borgarfirði 1995. - Biology teachers studying dungflies in Borgarfjörður, lceland, 1995. Ljósm. /Photo: Arni Heimir Jónsson. möguleika sína þegar þeir berjast út frá því hversu gott tak eigandinn hefur á kvendýrinu og í þriðja lagi metur sá karl sem hefur verið að verja kvenflugu verðmæti hennar og hefur það áhrif á hversu þrautseigur hann er í bardaganum. Stóru karlarnir eru líklegri en þeir litlu að leita að kvenflugu á yfirborði kúadellu en í grasinu. í byrjun eru þeir þar, því hentugra er að makast á dellunni (mökunartíminn er styttri - Parker 19700 og sumir ná sér í kvenflugu og makast við hana þar. Seinna opnast möguleikar fyrir tiltölulega stórt stakt karldýr að ráðast á pör og taka kvenflugu frá minni karli, einkum þegar kvenflugan fer að verpa. Minni karlarnir leita fremur í grasinu, sennilega vegna þess að þeir eiga litla sem enga möguleika á að ná kvendýrum af öðrum. Einnig er líklegra að litlir og grænleitir karlar geti falist þar þegar þeir hafa náð sér í kvendýr. Stærð þeirra miðað við stærð kvendýrsins, sem þeir eru parað- ir við, er marktækt minni en sama hlutfall hjá körlunum á dellunni (Hrefna Sigur- jónsdóttir og Sigurður Snorrason 1995). Hvaða möguleikar eru þá fyrir lítil karldýr að halda kvenflugunni þar til hún er búin að verpa? Svo virðist sem þeir séu mestir hjá þeim sem eru með litla kvenflugu. Þessi ályktun er dregin af niðurstöðum tengslaprófunar. Jákvæð marktæk fylgni er á milli stærðar kvendýra og karldýra sem eru pöruð, sérstaklega þeirra sem eru að makast í grasinu og einnig meðal para þar sem kvendýrið er farið að verpa (Hrefna Sigurjónsdóttir og Sigurður Snorrason 1995, Otronen 1993). Stór karldýr fá frið til að makast hvar sem er og ná að verja kvendýrin á yfirborði mykjunnar en aftur á móti missa lítil karldýr tiltölulega stórar kvenflugur til stærri karla í bardögum. Afleiðingin er að stórir karlar eru líklegri en þeir litlu til að vera paraðir við stórar kvenflugur. Það er því ýmislegt sem bendir til að stórum körlum vegni betur en þeim litlu. Þeir eru duglegri að ná sér í kvenflugur sem koma á varpstaðina og duglegri að taka kvcnflugur frá öðrum karldýrum. Þeir makast meira á volgri mykjunni þar sem mökun gengur hraðar fyrir sig og spara sér þannig tíma og þeir eru lika fljótari að makast (sjá hér á eftir). Þeir eru líklegri til að parast við stórar kvenflugur sem verpa fleiri eggjum en þær minni. Eins og áður 16

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.