Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 40
I. mynd. Skriðnafellsnúpur á Barðaströnd séður úr austri. - Mt. Skriðnafellsnúpur viewed
from the east. Ljósm./Photo: Magnús A. Sigurgeirsson.
■ STEINGERÐAR
GRÓÐURLEIFAR
FRÁ TERTÍER
Nokkrar rannsóknir hafa farið fram á
blágrýtismyndun Vestfjarða, s.s. á upp-
hleðslu hraunlagastaflans, aldri og milli-
lögum hrauna. Frá árinu 1984 hafa jarð-
fræðinemar við Háskóla Islands kortlagt
jarðlög á Barðaströnd og hafa niðurstöður
verið lagðar fram í B.S.-ritgerðum og
skýrslum.
Samkvæmt rannsóknum McDougall o.fl.
(1984) liðu að jafnaði um fimm |rúsund ár
á milli þess sem hraun runnu á vestan-
verðum Vestfjörðum. Athuganir Roaldset
(1983) leiddu í ljós að millilögin hafi
upprunalega verið mestmegnis úr gjósku.
Þegar gjóskan síðan ummyndaðist í tímans
rás, í röku og hlýju loftslagi, sköpuðust
ákjósanleg skilyrði til jarðvegsmyndunar.
Sums staðar eru varðveitt þykk setlög
sem sest hafa til í stöðuvötnum. I þeim
finnast steingerðar leifar gróðurs, s.s.
trjábolir, blaðför, fræ og frjókorn, sem
veita mikilvægar upplýsingar um flóru og
loftslag á tertíer. Steingervingarnir gefa til
kynna að hérlendis hafí vaxið ýmsar kulvísar
tegundir trjáa og plantna við sambærileg
skilyrði og nú eru í laufskógabelti
austanverðra Bandaríkjanna (Leifur A.
Símonarson 1981). Kolaðirútflattirtrjábolir,
svokallaður viðarbrandur, benda til að
stórvaxin tré hafi vaxið hér á þessum tíma. I
hraunlögunum sjálfum geta einnig
varðveist ýmis merki um trjágróður, s.s.
trjábolaför og afsteypur trjábola, auk
afsteypa af könglum og koluðum viði (sjá
samantekt hjá Friedrich 1968).
Á Vestfjörðum eru trjábolaför algeng í
hraunum. Finnast þau einkum við neðri
lagmót hraunlaga. í Skriðnafellsnúpi
fundust slík för í sex hraunlögum. Trjá-
bolaför eru talin myndast á eftirfarandi
hátt: Þegar trjábolur hylst hrauni tekur
fyrir aðstreymi súrefnis, sem veldur því að
skjótur bruni getur ekki átt sér stað.
Bolurinn heldur lögun sinni á meðan
hraunið storknar og síðar þegar viðurinn
kolast og eyðist myndast holrými, þ.e.
trjábolafar. Trjábolaafsteypa verður til
þegar trjábolafar fyllist af bergbráð.
34