Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 41
JARÐFRÆÐIKORT
1 I Þóleiít
P'U Ólivinþóleiit ■ Bœr
■ Dilótt þóleiit /'Vogur
Sprunga yf Straumvötn
Misgengi
2. mynd. Jarðfrceðikort af Skriðnafellsnúpi og nágrenni. Fundarstaður afsteypanna er
sýndur með ör. - Geological map of Skriðnafellsnúpur and vicinity. Arrow points to the
exposure where tlie tree casts were found.
ítarlegar lýsingareru lil af trjábolaförum í
Skagafirði, þar sem þau virðast sérlega
algeng (Sigurður Þórarinsson 1966,
Guðbrandur Magnússon 1983). Afsteypum
trjábola hefur áður verið lýst frá tveimur
stöðum hérlendis, Óslandi í Hornafirði og
Tröllatungu við Steingrímsfjörð (Leifur
Símonarson o.fl. 1975). Ljósmyndir af
afsteypum hafa auk þess birst á prenti á
nokkrum stöðum (Guðbrandur Magnússon
1983, íslandshandbókin 1989, Bjarni Richter
o.fl. 1994).
■ SKRIÐNAFELLSNÚPUR -
ÁGRIP AF jARÐSÖGU
Jarðlög í Skriðnafellsnúpi og nágrenni voru
kortlögð sumarið 1987 (Magnús Á.
Sigurgeirsson 1988, Barði Þorkelsson 1989).
Á jarðfræðikortinu og jarðlagasniðinu (2. og
3. mynd) sem hér l'ylgir eru basalthraun
flokkuð í þóleiít, ólivfnþóleiíl og dílótt
þóleiít, sem er nokkuð frábrugðið því sem
almennt hefur tíðkast (sjá kafla um
bergfræði).
Úr fjarska er Skriðnafellsnúpur mjög
reglulegur hraunlagastafli að sjá, lítið er
um bergganga og misgengi og sprungur
eru ekki áberandi. Halli jarðlaga er að
jafnaði 5° til SSA. Millilögin í Skriðna-
fellsnúpi eru yfirleitl minna en 60 cm þykk
og eru þau um 5% af heildarþykkt jarð-
lagastaflans. Þykkasta millilagið er rúmir
3 metrar að þykkt, úr brúnleitum sandsteini
með þunnu surtarbrandslagi efst. Lagið
hefur sennilega myndast í grunnu vatni
sem smám saman fylltist af seti og greri
síðan upp. Til þess benda gróðurleifarnar.
Setlag þetta er hægt að tengja surt-
arbrandslögum í Surtarbrandsgili við
Brjánslæk og í Stálfjalli, skammt vestan
Skriðnafellsnúps (Barði Þorkelsson 1989).
Aldursgreiningar á þeim hraunum sem næst
liggja surtarbrandslögunum við Brjánslæk
benda til að þau séu 11-12 miljón ára gömul
(W.L. Friedrich og Leifur A. Símonarson
1982). í ljósi þess má ætla að Skriðna-
fellsnúpur hafi hlaðist upp fyrir um 10-12
miljón árum.
Dreifing og tegundir ummyndunar-
steinda, einkum geislasteina (seólíta),
35