Náttúrufræðingurinn - 1997, Qupperneq 45
sömu bergbráð. Efna-
samsetning gangsins er
nokkuð óvenjuleg og er
aðeins vitað um fá hraun
eða innskot hérlendis
með svipaða samsetn-
ingu.
I ljósi þess sem hér
hefur verið sagt er næsta
víst að afsteypurnar hafi
myndast samtímis því sem
berggangurinn þrengdi
sér upp í gegnum
hraunið. Kvika hefur þá
þrýst sér út í holrými, þ.e.
trjábolaför, sem voru í
hrauninu næst gang-
inum. Trjábolaförin hafa
trúlega legið það þétt að
samgangur hefur verið á
milli þeirra að einhverju
leyti. Ysta lag afsteyp-
anna hefur að ölluin lík-
indum kólnað hratt, sem
marka má af glerskorp-
unni utan á þeim. Stuðl-
un afsteypanna gæti
bent til hins sama. Áber-
andi er hversu afsteyp-
urnar líkjast mjög bólstra-
bergi, en það myndast
emkum í vatni. Sennilegt 6 myn(j Ejn trjáhoiaafsteypan { Skriðnafellsnúpi. Hluti af
er að grunnvatn hafi hennj er ná varðveittur á Náttúrufrœðistofnun. - One of the
s ipt hér máli, en um það tree casts tn Skriðnafellsnúpur, a part of which is now pre-
veu ui ekki fjölyrt hér. served at the Institute ofNatural History in Reykjavík. Ljósm./
Photo: Magnús Á. Sigurgeirsson.
■ BERGFRÆÐI
Bergfræði storkubergs á Vestfjörðum hefur
reynst heldur fábreytileg. Basalthraun eru
yfirgnæfandi og tiltölulega lítið um ísúrt og
súrt berg. Allt berg sem greint hefur verið frá
Vestfjörðum hefur flokkast til þóleiísku
bergraðarinnar (sjá Bailey og Noe-Nygaard
1976, Meyer 1978). Til samanburðar má
nei'na að á nútíma hafa myndast þrjár
bergraðir í virku gosbeltunum, þóleifsk
bergröð, alkalfsk bergröð og „milli“-bergröð
(Sveirin P. Jakobsson 1980).
Við kortlagningu tertíerra basalthraunlaga
hefur tíðkast að nota flokkunarkerfi sem
Walker (1959) þróaði við kortlagningu
hraunlaga á Austfjörðum. Skipti hann
basalthraunlögum þar í þrjá hópa, þóleiít,
ólivínbasalt og dílótt basalt, með tilliti til
útlitseinkenna, s.s. kornastærðar, veðrunar,
litar og dílahlutfalls. Þessar nafngiftir eru
hins vegar misvísandi og ekki í samræmi við
bergfræðilega flokkun basískra hrauna sem
viðhöfð er í dag (Sveinn P. Jakobsson 1984).
39