Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 58
og sláttuþols og síðast en ekki síst þarf
vetrarþol að vera gott, bæði gagnvart
svellum og kulda. Við val á tegundum í
framtíðinni verður væntanlega meira tillit
tekið til þess hvaða náttúrulegur gróður
leitar í túnin þegar sáðgresið hverfur. Ekki er
mikið svigrúm í þessu efni eins og er.
Vallarfoxgras verður væntanlega áfram
vinsæl tegund þar sem það er uppskeru-
mikið, lystugt og gott fóðurgras. Háliðagras
og vallarsveifgras verða áreiðanlega
töluvert notuð í náinni framtíð. Hins vegar
má búast við að túnvingull verði minna
notaður en hingað til hefur verið. Ovíst er
um framtfð beringspunts. Hann hefur ekki
náð þeim vinsældum sem búist var við.
Líklegt er að hálíngresi verði á sáðvöru-
markaði hér innan tíðar. Af nýjum tegundum
sem væntanlega verða notaðar má nefna
rauðsmára og jafnvel fjölært rýgresi í hlýrri
sveitum.
Töluverðar umræður hafa verið um
innflutning nýrra tegunda til landsins að
undanförnu. I því efni er mikilvægt að fara
að öllu með gát, einnig þegar um er að
ræða tegundir sem ætlaðar eru í tún. Þetta
gildir einnig um notkun á innlendum
tegundum. Eins og áður hefur komið fram
er lítið af snarrótarpunti í sumum héruðum
landsins. Margt bendir þó til þess að hann
geti þrifist þar sé honum sáð. Snar-
rótarpunturinn dreifir sér með fræjum og nær
að þroska fræ í flestum árum. Það er því
óvarlegt að flytja hann á þau svæði þar sem
lítið er af honum fyrir, hvort heldur er til
uppgræðslu eða túnræktar.
■ HEIMILDIR
Áslaug Helgadóttir 1996. Ræktun erlendra
nytjaplantna á Islandi. Náttúrufræðingurinn
65 (3-4). 127-136.
Guðni Þorvaldsson 1994. Gróðurfar og nýting
túna. Fjölrit Rala nr. 174. 32 bls.
Hörður Kristinsson 1986. Plöntuhandbókin.
Örn og Örlygur, Reykjavík. 304 bls.
Steindór Steindórsson 1954. Um aldur og
innflutning íslenzku flórunnar. Ársrit
Ræktunarfélags Norðurlands 51. 101-115.
Sturla Friðriksson 1956. Grasa- og belgjurta-
tegundir í íslenskum sáðtilraunum. Rit
landbúnaðardeildar, B-flokkur nr. 9. 51 bls.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Guðni Þorvaldsson
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Keldnaholti v. Vesturlandsveg
112 Reykjavík
I
52