Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 8

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 8
skapa liins vegar góöa festu uns ójöfn- urnar eru fenntar í kaf. Þegar ójöfnur hefur fennt í kaf ræður styrkur lagmóta í snjóþekjunni mestu um festu hennar því ef þekjan brestur gerist það vanalega um veikustu lag- mótin. Sem dæmi um veikburða lagmót má nefna djúphrím, vatnsósa snjó og mörk lausasnjós og skara (hjarns). Ef þurr snjór fellur á harðfenni (eða frosna, auða jörð) fær snjólagiö lélega festu og hætta getur verið á lausasnjóflóðum ef halli lands er nægur. Falli hins vegar votur snjór á frosið yfirborð frjósa sam- skeytin og steypast saman og snjólagið fær góða festu. Sama gildir ef þurr snjór fellur á blautt yfirborð. En þá er hins vegar nokkur hætta á að djúphrím geti myndast með tímanum og lagmótin veikst. Loks má nefna, að leggi vind- barða fleka ofan á lausasnjó er hætta á að holrúm myndist undir flekunum, vegna þess að lausasnjórinn sest hraðar en hin vindbarða snjóþekja. Flekahlaup geta orðið þegar slíkt holrúm fellur saman. Spennur í snjóþekju Spennur myndast vegna hreyfinga í snjóþekjunni. Um leið og hin einstöku snjókorn ummyndast og verða kúlulaga sest snjórinn, rúmmál hans minnkar og eölismassinn vex. En einnig sígur snjór- inn undan eigin fargi niöur fjallshlíðina, formbreytist, þ. e. a. s. breytir um lögun, vegna skerspennu. Hraði snjókornanna er mestur efst í þekjunni og minnkar er nær dregur botni (5. mynd). Þess vegna skapast skerspenna í þekjunni, sem reynir á hin einstöku lög, lagmót og samskeytin við botn. Því þykkari sem snjóþekjan er því meiri er þessi sker- spenna. Hún vex einnig með auknum 5. mynd. Heildarhreyfing snjóþekju staf- ar af sigi hennar og rennsli eftir botni. halla fjallshlíðar. Ef veikburða lög þola ekki þessa spennu bresta þau og snjóflóð geta fallið. Auk þessarar hreyfingar rennur snjó- þekjan í heild hægt niður eftir botni. Rennslið er háð halla hlíðarinnar og hrjúfleika við botn. Heildarhreyfing þekjunnar stafar því af sigi og rennsli. Þar sem halli og hrjúfleiki og þykkt snjóbreiðu eru breytileg í fjallshlíð er hraðinn einnig mismunandi frá einum stað til annars (6. mynd). Hin ójafna hreyfing veldur spennum í snjóbreið- unni, — togspennum yfir bungum en samþjöppun í dældum. Á sléttum fleti neðan við ójöfnur myndast einnig tog- spennur. Þar sem togspenna myndast getur snjóþekjan rifnað eftir hlíðinni og lóðrétt sprunga myndast, sem nær niður á botn eða lagmót. I dældum, þar sem þekjan er pressuð saman, er hún stöðug nema snjórinn sé mjög blautur. 262

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.