Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 14
TAFLA II.
Þrýstingur
tonn/m2 Líklegt tjón
0.1 Rúður brotna, hurðir laskast.
0.5 Hurðir falla af stöfum.
3 Húsveggir eyðileggjast.
10 Hús færast af grunni.
100 Járnbent steinsteypuhús sópast
burt.
ast með straumnum og skella á hindr-
anir. Þess eru einnig dæmi að fólk hefur
kafnað undan eins fets þykkum snjó.
Skriðlengd snjóflóða
Annað mikilvægt atriði í sambandi
við snjóflóðahættu er að átta sig á hve
langt flóðin skríða niður í fjallshlíðar.
Flóðin stöðvast þegar núningskraftar
hafa eytt hreyfiorku þeirra. Skelli flóð
hins vegar á fullu skriði á hindrun skríða
þau upp eftir henni og stöðvast ekki fyrr
en hreyfiorkan hefur breyst í stöðuorku
og núningstap. Mat á þeirri hæð, sem
flóð getur skriðið upp, er því h = v2/2g,
þar sem v er hraði flóðsins og g er
þyngdarhröðunin (9.8 m/s2). Sem dæmi
má taka að við hraða 10 m/s (eða 36
km/klst.) myndi snjór geta skriðið upp 5
m háar hindranir og flæða yfir þær ef
þær væru lægri. Áður var að því vikið að
við þennan hraða má reikna með því að
flóðið skylli á hindrunina með há-
marksþrýstingi 3 t/m2 ef eðlismassi
snjósins væri p = 300 kg/m3.
Algengustu fallbrautir flóða eru i
giljum og gljúfrum og þær brautir eru
að jafnaði lengstar því að þar er snjór
dýpstur og hraði flóðanna mestur. Þeg-
ar flóð fellur niður opnar hlíðar er
skriðlengdin venjulega styttri en þegar
það fellur í afmörkuðum brautum eins
og giljum.
Lögun upptakasvæðis og fallbrautar
ræður miklu um hraða flóðsins og hve
langt það berst uns það stöðvast í snjó-
flóðstungunni. Þrengist rásin er neðar
dregur vex hraðinn við það.
Við gróft mat á skriðlengd flóða er oft
reiknað með joví, að lárétt fjarlægð frá
upptökum sé þreföld fallhæð flóðsins frá
upptökunum. Sjónarhorn frá broddi
flóðstungunnar til upptakasvæðisins er
því um 18°. Fræðilegt mat á hraða
snjóflóða og þar með skriðlengd þeirra
fellur utan við ramma jsessarar greinar.
Skipting lands í hœttusvœði
Æskilegt væri að draga útlínur
stærsta hugsanlega svæðis, sem snjóflóð
geta fallið yfir, og lýsa það hættusvæði
og banna þar allar byggingafram-
kvæmdir. Þetta er góð meginregla en i
framkvæmd er ekki unnt að forðast al-
gerlega snjóflóðasvæði. Þess vegna
verður að meta nánar hver hættan er á
hinum ýmsu hlutum snjóflóðasvæða,
taka ákvörðun urn hvaða hættu menn
geti sætt sig við og meta hvers kyns
framkvæmdir megi leyfa á hinum ýmsu
svæðum. Af yfirlitinu um líklegt tjón af
völdum snjóflóða sést að alls engar
byggingar skyldi reisa á svæðum þar
sem jDrýstingur flóðs getur orðið meiri en
3 t/m2.
Víða erlendis er landi skipt í fjögur
eftirtalin svæði á grundvelli mats á tíðni
flóða og þrýstings í þeim:
1. Rautt svæði. Þar eru líkur á að flóð
með þrýstingi yfir 3 t/m2 falli að
meðaltali oftar en á 300 ára fresti eða
flóð með minni |uýstiáraun oftar en
á 30 ára fresti. Algert bann er við
268