Náttúrufræðingurinn - 1987, Qupperneq 28
Mývatni (Lindegaard 1979a). í Laxá
og Kráká fundust 34 tegundir rykmýs
(Lindegaard 1979b). Sumarið 1977
hófust enn frekari athuganir á rykmýi í
Mývatnssveit, sem skiluðu á fyrstu
tveimur árunum 5 tegundum sem ekki
höfðu fundist þar áður (Erlendur Jóns-
son o.fl. 1986).
RYKMÝ
Nafnið rykmý er hér einungis notað
yfir eina ætt flugna sem á latínu er
nefnd Chironomidae. íslenska heitið
rykmý á sennilega rætur að rekja til
lífshátta rykmýsins. Mergð rykmýs-
flugna er á stundum mjög mikil, jafn-
vel svo að dregur fyrir sólu líkt og í
þreifandi moldroki. Mikil mergð ryk-
mýsflugna á ákveðnum stöðum í tak-
markaðan tíma stafar m.a. af því að
lífsferlar rykmýs eru oft mjög sam-
stilltir og mikil mergð flugna klekst á
skömmum tíma úr vötnum þar sem
lirfurnar vaxa (Oliver 1971). Flugurn-
ar safnast gjarnan saman til mökunar
svo tugum þúsunda skiptir. Mökun
flugnanna fer fram í flugusveimum og
eru sveimarnir mest áberandi á hlýjum
kyrrviðrisdögum, en vindhviður feykja
þá mýflugusveimunum til líkt og ryk
væri.
I ritinu Ein stutt undirrietting um
Islands adskiljanlegar náttúrur sem
Jón Guðmundsson lærði skrifaði um
1640 (sjá Halldór Hermannsson 1924)
segir svo um mý:
„Mý er iij. kyniad, hit smæsta siá at eins
glöggskygn augu. Annad nockud
stærra, sem er alment og blár farfi er af
brendur. Þad þridia er vatnzmý, sem
silungur eptir sækir, en þad elskar vötn-
inn, og drepst þar so hrannar sem
ara“.
þessari lýsingu Jóns lærða kemur
hvort tveggja fram, að mergð mý-
flugna verður á stundum með ólíkind-
um, en þessi merki fræðimaður vissi
einnig að silungur sækir grimmt í að
éta mýið sem hann segir að elski vötn-
in. Lirfur rykmýsins ala aldur sinn í
vötnum og skýrir það ást mýflugnanna
á vötnum. Lirfustigi rykmýs lýkur með
því að lirfurnar púpa sig, en í púpun-
um myndbreytast lirfurnar í fullþroska
flugur.
LÍFSHÆTTIR
Lífsferli rykmýsins má skipta í
fjögur stig; egg, lirfu-, púpu- og flugu-
stig (1. mynd). Af þessum stigum
stendur lirfustigið lengst, og varir yfir-
leitt frá nokkrum vikum upp í tvö ár
og tekur meginhluta líftíma hverrar
kynslóðar. Reyndar eru dæmi um að
lífsferill rykmýs á hánorrænum svæð-
um taki allt að 4 til 7 ár.
Kvenflugan verpir eggjum sínum í
einum massa í vatn og eru egg hverrar
flugu nokkur hundruð. Eggjamassinn
er dökkleit kúla við varp. Þegar hann
lendir í vatninu bólgnar út slímhjúpur
sem umlykur eggin. Röðun eggjanna í
slímhjúpnum og lögun eggjamassans
er mismunandi (Oliver 1971). Hjá
tveimur undirættum rykmýs (Orthocl-
adiinae og Diamesinae) eru eggjamass-
arnir yfirleitt ílangir eða borðalaga og
raðast eggin þvert á lengdarás slím-
hjúpsins. Önnur meginform eggjamass-
anna er kúlu-, peru-, eða sívalnings-
lögun. Eggin eru þá ýmist óreglulega
dreifð í slímhjúpnum eða raðast undir
yfirborði hans. Eggjamassinn er léttur
í sér og berst því oft um með
straumum á meðan eggin eru að
þroskast. Tegundir sem lifa í ám og
lækjum festa eggjamassa sína við fast
undirlag svo að þau berist ekki á haf út
áður en lirfurnar ná að klekjast úr
22