Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1987, Side 74

Náttúrufræðingurinn - 1987, Side 74
2 □ □ 0 □ H H-f"t 1 < < \ t > I I------1-----1------ Jan Feb Mars □ □ —i-----1— Apn Maí Júní Júlí Ag □ i i i i i i i i i i i i i i i —I------1------1------1 Sept Okt Nóv Des 8. mynd. Myndin sýnir hvenær hringmáfar hafa fyrst sést hér á landi.. Teknir eru allir fuglar sem sést hafa til ársloka 1984. Súlurnar sýna fjölda þeirra eftir vikum. Notaður er lágmarksfjöldi fugla. — First occurrences of Ring-billed Gulls (Larus delawarensis) in Iceland. Each column represents number recorded per week. Records from 1981 — 1984 are included. Only the minimum number of birds seen is taken into account. Fjöldi einstaklinga, sem hér hafa sést, er nokkuð óljós. Þeir eru a.m.k. ellefu, en hugsanlega allt að nítján. Þrír fullorðnir fuglar hafa sést í apríl og ágúst til september, tveir tveggja ára fuglar í aprfl, einn liðlega ársgam- all í október og fimm ársgamlir frá mars til júní (8. mynd). Þrisvar hafa fuglar dvalið hér að sumarlagi, frá mars og aprfl til september og októ- ber, allt ársgamlir fuglar. Verið getur að einhverjir ofangreindra fugla hafi einnig haft hér vetrardvöl, en slíkt er þekkt annarsstaðar í V-Evrópu. Því gæti fjöldi einstaklinga í raun verið minni en að ofan greinir. Mikill fjöldi hringmáfa, aðallega ungfuglar, sáust á Bretlandseyjum árið 1981, og er talið að veðrátta á austurströnd Bandaríkjanna hafi átt þar hlut að máli (Vinicombe 1985). Þeir fuglar, sem þá komu, eru taldir hafa verið viðloðandi í a.m.k. tvö ár. Fullorðnir fuglar eru sjaldséðir á Bret- landseyjum að sumarlagi (hverfa á vorin), en ársgamlir fuglar hafa hins vegar oft sumardvöl þar. Hér á landi virðist gæta svipaðrar tilhneigingar. Hringmáfar eru að jafnaði lítið eitt stærri en stormmáfar. Höfuðlagi þeirra svipar til stórra máfa. Fuglar á fyrsta ári hafa ljósara bak og vængi og dekkri handflugfjaðrir en stormmáfar á sama aldri. Fuglar á öðrum vetri eru gráir á baki og vængjum, en handflug- fjaðrir eru enn mjög dökkar með ein- um eða engum hvítum blett á enda handflugfjaðra. Stormmáfar hafa hins vegar áberandi slíka bletti og eru held- ur dekkri á baki. Hringmáfar á þessum aldri hafa oftast leifar af dökkri stélrák og rák yst á armflugfjöðrum, en storm- máfar ekki. Fullorðna hringmáfa má greina frá stormmáfum á svörtum hring á nefi, sem þeir draga reyndar nafn sitt af, gulara nefi, gulari fótum og heldur minni vængblettum. Þeir hafa einnig gula lithimnu í augum, en stormmáfar brúna. Rósamáfur (Rhodostethia roseá) Rósamáfur er tiltölulega lítt þekkt- ur, bæði hvað útbreiðslu, farleiðir og lifnaðarhætti snertir. Fyrsti fuglinn fannst á V-Grænlandi upp úr 1800, en varpstöðvarnar ekki fyrr en öld síðar. Varpheimkynni rósamáfa eru í NA- Síbiríu, í ýmsum dölum og við árósa nokkurra fljóta, sem renna í íshafið. Fáeinir rósamáfar hafa orpið reglulega undanfarin ár við Hudsonflóa í Kan- ada. Rósamáfar hafa auk þess orpið nokkrum sinnum utan hinna reglulegu varpheimkynna, svo sem á V-Græn- 68
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.