Náttúrufræðingurinn - 1987, Qupperneq 87
Sigurður Steinþórsson:
Hraði landmyndunar
og landeyðingar
INNGANGUR
Til er dæmisaga sem lýsir eilífðinni.
Fyrir utan borg nokkra er hár klettur.
Lítill fugl kemur á 100 ára fresti og
brýnir gogg sinn á klettinum. Af þess-
um sökum eyðist kletturinn smám
saman. Þegar hann er upp eyddur er
liðin ein sekúnda af eilífðinni.
Og þetta er kannski ekki svo fráleit
samlíking. Það er algengt að bera
jarðsöguna saman við almanakið: Ef
4500 Ma (milljón ára) saga jarðar jafn-
gilti einu ári, eða 365 dögum, þá jafn-
gilti mannsævin (75 ár) hálfri sekúndu,
íslandsbyggð (1100 ár) hefði hafist
fyrir 8 sekúndum, elsta berg íslands
hefði myndast fyrir rúmlega einum
degi (14,4 Ma, McDougall o. fl. 1984),
tertíertíminn hafist fyrir 5 dögum (60
Ma) og kambríum fyrir 48 dögum.
Svona er nú eilífðin löng, og land-
mótun gerist víðast hvar svo hægt að
menn greina hana ekki.
Hér á landi verðum við þó vör við
ýmislegt: eldgos, skriðuföll og jökul-
hlaup. Þegar vegarstæði Ægisíðu í
Vesturbæ Reykjavíkur var teiknað á
20 ára gamalt kort árið 1944 eða 1945
reyndust 20 m hafa eyðst af ströndinni
á jafnmörgum árum (Einar B. Pálsson
1986, munnl. uppl.).
Hér verður reynt að slá tölum á sum
mikilvægustu ferlin, sem móta ísland.
Allar eru þessar tölur meira eða minna
ónákvæmar, en gefa þó vonandi efnis-
lega réttar almennar niðurstöður.
FRAMLEIÐSLA GOSBERGS OG
RÚMMÁL ÍSLANDS
Rúmmál gosbergs sem myndast hef-
ur á íslandi sl. 10.000 ár hefur verið
áætlað 420 km3, eða um 4,2 km3 á öld
(Sigurður Þórarinsson & Kristján
Sæmundsson 1979, Sveinn Jakobsson
1979), en Guðmundur Pálmason og
Kristján Sæmundsson (1974) nota 4,5
km3 á öld. Til samanburðar var rúm-
mál Skaftáreldahraunsins 1783 um 12
km3, sem er svipað og rúmmál stærstu
dyngja, t.d. Skjaldbreiðar og Trölla-
dyngju.
Meðalhæð íslands yfir sjó er um 500
m. Heildarrúmmál landsins fyrir ofan
sjávarmál er því um 51.500 km3 (=
103.000 km2 x 0,5 km), eða heldur
meira en rúmmál þess gosbergs sem
myndast á milljón árum (42.000 til
45.000 km3). Af þessum tölum má
ráða að allt það berg sem er ofansjávar
á íslandi hefði getað myndast á 1,2
Ma, sem jafngildir V12 hluta aldurs elsta
bergs landsins (um 14,5 Ma). Sé gert
Náttúrufræðingurinn 57 (1-2), bls. 81-95, 1987
81