Náttúrufræðingurinn - 1987, Side 96
6. mynd.
(a) Kubbur með eðlisþyngd pk flýtur í
vökva með eðlisþyngd pv. Þá gildir skv.
lögmáli Arkimedesar að pk-hk=pv. Tíu km
þykk skorpa með eðlisþyngd 2,8 g/cm3
sekkur þá 8,23 km niður í möttul með eðlis-
þyngd 3,4 g/cm3.
(b) Líkt eftir áhrifum jökulfargs á landið. í
keri er þungur vökvi, sem sveigjanlegur
fleki flýtur á. Kerið er í öðru stærra, sem
fyllt er með vatni þannig að flýtur inn í
innra kerið. Lóð þrýstir miðbiki flekans
niður.
(c) Lóðinu í (b) hefur verið lyft af og
flekinn rís í jafnvægisstöðu. „Möttulefni"
flyst undir miðbik flekans, en jafnframt
lækkar í innra kerinu þannig að vatnsstaða
hækkar við „ströndina".
An experiment to illustrate the effects of
isostatic movements upon sea level around
the coasts of Iceland.
(a) According to Archimedes' Law, a 10
km thick crust of2.8 glcm3 density will sink
8.23 km into an upper mantle of density 3.4
g/cm3.
(b) In the inner container an elastic “crust"
reaches equilibrium. Water in the outer
container can flow into the inner one. The
elastic “crust“ sags below a weight.
(c) The weight in (b) has been lifted and the
“crust“ reaches equilibrium. As “mantle
material" flows laterally towards the centre
of the container, the surface level in the dist-
al regions is lowered, and the sea level rises
at the coast.
landris á Skaga. Hið hálenda „Alpa-
landslag“ á A-, N- og NV-landi (Gutt-
ormur Sigbjarnarson 1982) hlýtur að
vera a.m.k. að hluta til afleiðing Iand-
riss vegna jökul- og sjávarrofs.
Eins og áður var nefnt veldur sam-
verkan landsigs af völdum kólnunar og
breytilegrar framleiðni eftir gosbeltinu
því að ísland er sporöskjulaga og
strandlínan u.þ.b. stöðug (5. mynd c).
Sé reiknað með því að strandrof hafi
samsvarað gliðnun sl. 3 Ma, hafa 30
km rofist af austur- og vesturströnd-
inni á þeim tíma. Tölur Walkers
(1982) fyrir Austurland eru hinar einu,
sem til eru, og skv. þeim hafa (1,4 X
30)km2 rofist burt utan strandar af
hvorum enda A-V sniðs yfir landið og
(0,9 x 50) km2 á landi, eða 2x87 km2
alls. Ef strandlínan er 330 km hornrétt
á rekstefnuna (5. mynd b) svarar þetta
til 57000 km3 alla ísöldina, eða 19000
km3 á Ma.
7. mynd sýnir setkragann utan við
landgrunnsbrúnina SA af íslandi, allt
að 2 km þykkan (Leó Kristjánsson
1976, Leó Kristjánsson o.fl. 1977). Sé
reiknað með því að setbunki þessi sé
20 km breiður og 1 km þykkur að
meðaltali (7. mynd b) er þverskurður
hans 20 km2. Að auki má reikna með
því að á landgrunninu sjálfu, inn af
setkraganum, sé 50—100 m þykkt set
sem þeki 20-50 km ræmu meðfram
90