Náttúrufræðingurinn - 1987, Qupperneq 98
1. tafla. Samantekt helstu þátta í landmyndun og landeyðingu íslands á 14,5 Ma
(þúsundir km3). —Balance sheet for the subaerial Icelandic crust throughout 14.5 Ma (in
thousands of cubic kilometers).
inn addition út subtraction
Skorpumyndun New crust 100
Eyðing vegna kólnunar Contraction by cooling 67
Eyðing vegna árrofs Erosion by rivers 63
Eyðing vegna jökulrofs Erosion by glaciers 10
Landeyðing umfram landmyndun Destruction beyond construction 40
AllsITotal 140 140
bundnu flotjafnvægi, en skv. kórréttri
kenningu dreifist aukaþungi yfir
stærra svæði, því að skorpan svignar
eins og ís á tjörn undan þunga. Mæl-
ingar Eysteins Tryggvasonar (1973)
kringum Kötlu benda þó til þess að
jarðskorpa íslands sé furðufljót að
laga sig að breyttum aðstæðum, en þar
kom í ljós að landið umhverfis Mýr-
dalsjökul svaraði árstíðabundnum af-
komubreytingum jökulsins: skorpan
sígur undan auknu snjófargi vetrarins
en rís við þiðnun jökulsins á sumrin.
HEITI REITURINN
Loks er að geta möttulstróksins
undir íslandi, sem að bestu manna
yfirsýn er nú undir vestanverðum
Vatnajökli. Þyngdarmælingar höfðu
áður bent til þess, að slíkur strókur,
600 km djúpur og 1% léttari en mött-
ullinn umhverfis (Morgan 1972), væri
undir íslandi og ylli því að landið er
yfirleitt ofan sjávarmáls. Síðan hefur
verið sýnt fram á slíkan strók, meira
en 420 km djúpan, með firrðskjálfta-
mælingum (teleseisms; Kristján
Tryggvason o.fl. 1983). Strókur þessi
virðist hafa um 100 km þvermál, og
þannig gætir áhrifa hans mest um mið-
bik landsins. Þegar skorpuna rekur út
af stróknum, hratt til vesturs en hægt
til austurs, verður landsig því meira en
sem svarar samdrætti í skorpunni
vegna kólnunar. Á þetta er bent hér,
en málinu ekki fylgt frekar að sinni.
UPPGJÖR OG YFIRLIT
Ef notað er líkanið á 5. mynd b (330
km langt gosbelti, 1,04 km landhæð
eftir því endilöngu, og 145 km land-
myndun til hvorrar áttar á 14,5 milljón
árum), hafa myndast 110.000 km3 of-
ansjávar. Af þessu hurfu % hlutar nið-
ur fyrir sjávarmál á 14,5 Ma, eða
67.000 km3. Framburður straumvatna
var áætlaður 0,025 km3/ár, eða
363.000 km3 á 14,5 Ma. Á móti kemur
92