Náttúrufræðingurinn - 1958, Qupperneq 11
LANDSLAG Á SKAGAFJALLGARÐI
5
1. mynd. Minkun á rúmmáli (meðalhæð) landslags með tímanum. Þróunin byrj-
ar á sléttu hálendi með rúmmál (hæð) Vo. Tíminn er talinn fram og aftur frá
því er rúmmálið er V — 0,5 Vy. Líklégasta þróunarleið landslagsins liggur milli
línanna 4 og 5 annars vegar og 2 og 3 hins vegar. T er tíminn, sem rúmmálið
væri að eyðast að hálfu, ef eyðingarhraði væri allan tímann eins og hann er við
V = 0,5 V0 og mundi þróunin þá fylgja línu 1.
Decrease of volume V (average height) of a plateau of original volume Vo with
time. Zero of time is chosen for V =0,5 Vo- The development is expected to fall
between curves 4 and 5 on the one liand and between 2 and 3 on the other. T
is tlie time during wliich the volume would decrease by 50% if the decrease
were constant and hacl the value for V =0,5 Vo- The development would in
that case follow the line 1.
magn er í beinu hlutfalli við straumhraðann. Það lag, sem flettist af flatar-
einingu hlíðarinnar á tímaeiningu má ]tá setja jafnt sini. Umreiknað á lárétt
ofanvarp verður þessi lagþykkt tgi. Nú er litið á stórt svæði þar sem fyrir kem-
ur fjöldi dala. Rúmmál alls eyðingarlagsins finnst með samlagningu yfir allt
svæðið og þá er ljóst, að þeirra hluta gætir mest þar sem hallinn er teljandi
Aðeins í kornungu og mjög gömlu landslagi gætir hallalítilla svæða verulega
í heildinni, en þar á milli eru sléttu svæðin lítil og þau margfaldast með
tangens af litlu Iiorni og þeim má því sleppa. 1 sundurskornu landslagi er enn-
fremur algengur halli, sem ekki víkur langt frá náttúrlegum skriðuhalla. Með
þetta í liuga er eðlilegt að tala um meðalgildi á tgi og þá má orða setningu
þannig: Eyðing á (stóra) flatareiningu er í réttu hlutfalli við flatarmál þeirra
svæða, sem hafa teljandi halla og í réttu hlutfalli við nteðalgildið á tgi á þess-
um svæðum.
Ég skipti nú athuguninni í tvennt, fylgi fyrst eftir þróun landslags, sem
þegar er sundurskorið í uppmjóa hryggi með óbreyttri upphafshæð landsins og
þar sem dalir hafa náð fullri dýpt. Tel ég þá að helmingur hafi eyðst