Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 13

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 13
LANDSLAG Á SKAGAFJALLGARÐI 7 gildi og lítilsháttar frávik frá því breyta litlu í framhaldinu. Við reiknum nú framhaldið eftir tveimur forsendum, veldisvxsinum s/2 og 1. Hið fyrra gefur dV =-a(Vo-V)^ (V0/2)-^dt eða 3(V0-V)^-3(0,05 V0)W = (V0/2)^ t/T (lína 5, mynd 1), sem gefur eyðingartimann Ti = 1,61T fram að V = V0/2. Hitt tilfellið gefur V0 —V = 0,05 V0 e'/T (lína 4, mynd 1), með eyðingartíman- um Ti = 2,3T. Ef gildið 2T fyrir eyðingartímann er notað, er líklegt að skekkjan nenti aðéins fáum tíundupörtum af T. Aldur landslags með V = V0/4 væri þá um 2,65T. Eyðingarhraði í slíku landslagi væri hins vegar sá, að með honum óbreyttum mundi eyðingin hafa tekið timann 3T eða 2,12T eftir því hvort lína 3 eða lína 2 er notuð, og meðaltalið 2,56T má teljast jafnt áður fengnu gildi. Aldur slíks landslags, þar sem yA a£ upphafsrúmmáli eru eyddir, má finna með einföldum hlutfallareikningi, ef tíminn, sem minni- háttar landeyðing þá tekur er þekktur, og þessi ályktun helzt, þótt smávægilegar breytingar væru gerðar á forsendum reikningsins. Þessi ályktun af reikningunum verður notuð lítillega síðar í þess- ari grein, og þá gert ráð fyrir, að upphafsris landsins hafi verið hratt miðað við eyðingu .Að öðru leyti er það um reikningana að segja, að mjög er athyglisvert hvað hinar almennu forsendur, sem eru fyrst og fremst rúmfræðilegar, setja þróun lands þröng mörk. Að svona reikningi ætti að geta verið mikið gagn, á því bili, þar sem land er eytt að V10 til 9/10. Sjálft upphaf og endir þróunar- innar verður ekki ráðið við á þennan hátt, og hlutfallshraði lyft- ingar og eyðingar, sem erfitt getur verið að dæma um, gæti haft verulega þýðingu. Um aldur landslags hér á landi varð snemma ágreiningur. Á tímum Þorvaldar Thoroddsens var það almenn skoðun, að aliir megindrættir landslagsins væru mun eldri en ísöldin, en um og eftir síðustu aldamót komu til sögunnar, við rannsóknir Helga Pjeturss, jökulmyndanir, að því er hann taldi, sem eldri eru en megindalir. Voru þær frá miklu eldri ísöld, eins og dr. Helgi hélt fyrst, eða hafði dalamyndun hér orðið svona miklu hraðari en menn héldu? Flestir hafa hneigst að síðari skoðuninni, og eftir áður sögðu um árframburð, gat hún staðist. Þó hef ég aldrei getað fellt mig við hana, eins og komið hefur fram í nokkrum ritgerð- um, meðal annars hér í tímaritinu (sjá einnig Guðm. Kjartansson, Náttúrufræðingurinn 1956; bls. 122). Landslagið á Skagafjallgarð- inum opnar nú nýja leið til að ræða þessa spurningu og ef treysta má þeim niðurstöðum, sem fengist hafa hér á landi og víðar um

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.