Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 45
BLÁGRÆNÞÖRUNGAR
35
um er þannig háttað, að þörungurinn annast um tillífun kolsýr-
unnar, en sveppurinn sér um flest önnur störf. Þekkt er og sam-
lífi blágrænþörunga við litlausa svipuþörunga og frumdýr. Einnig
lifa nokkrar tegundir sem sníklar í meltingarfærum manna og
dýra.
Sambú og þal.
Blágrænþörungarnir eru yfirleitt mjög smávaxnar jurtir, og ekki
sýnilegir berum augum nema þeir komi margir saman. Einstakar
frumur og frumukeðjur eru langoftast milli I og 10 g á breidd og
a b c
2. mynd. a Aphanothece stagnina (X 660). Sambú, frumurnar í sameiginlegu
hlaupi. b Chroococcus turgidus (X 800), c Merismopedia tenuissima (x 460).
Sambú, frumurnar í einum fleti. (G. M. Smith).
sambúin milli 10 og 1000 p (= 1 mm). Það er fyrst þegar myndast
hafa stór samfélög einstaklinga af einni eða fleiri tegundum, að
gróður þessi verður áberandi, sem blágrænar breiður, skánir eða
kúlur, eða sem vatnablómi.
Frumstæðustu tegundir blágrænþörunga eru einfrumungar, en
sjaldnast eru þeir einir sér heldur fleiri saman í sambúi (kóloníu).
Sambú þessi eru mismunandi að stærð og lögun, stundum eru
aðeins fáir einstaklingar í hverju þeirra, en oft skipta þeir hundr-
uðum. Sambúið helzt saman af slímkenndum efnum, sem frumurnar
gefa frá sér, en frymistengsl eru engin. Skipan frumanna í sambú-
inu er stundum mjög reglubundin og kemur hún fram við það, að
frumumar skipta sér eftir ákveðnum reglum og færast ekki úr
stað á milli skiptinga. Algengara er þó hitt, að frumurnar færist