Náttúrufræðingurinn - 1949, Síða 16
8
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
prófessor Guðmund G. Bárðarson leið. Alla tíð vann Kári ötullega
að söfnun steingervinganna í Tjörnesbökkum. Framan af ævinni Iét
liann söfn sín af liendi við ýmsa sérfræðinga, er hann treysti til,
að ynnu úr þeim. Mun honum á stundum hafa þótt sem lítið gengi
undan í því efni. Síðustu árin hygg ég, að hann hafi lagt kapp á
að koma upp sem fullkomnustu steingervingasafni úr bökkunum
og rekja skeljalög þeirra sem nákvæmast. Hepjmaðist honum að
finna áður óþekkt skeljalög neðst í Kambsgjá, og Iiann mun einnig
fyrstur hafa tekið eftir því, að jarðlögum Breiðavíkur hallar á
annan hátt en plíósenu lögunum vestan á nesinu.
Kári Sigurjónsson var hár maður vexti og fríður sýnum. Hann
var margfróður og skemmtilegur í v.'ðræðum, hóglátur og prúður,
svo að af bar. Sá, sem þetta ritar, átti Jiess nokkrum sinnum kost að
njóta leiðbeininga hans um Tjörnesbakka og frábærrar gestrisni á
heimili hans.
Kári var kvæntur Sigrúnu Árnadóttur frá Þverá í Reykjahverfi.
Lifir hún mann sinn. Varð þeim hjónum fimm barna auðið. Þau
eru: Guðný Hulda, Dagný (látin), Ásdís, Árni og Bjarki. Búa synir
þeirra nú að Hallbjarnarstöðum. Auk Jress ólu Jrau hjón upp eina
fósturdóttur, Önnu að nafni.
Kári var jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 2.
febrúar síðastliðiirn.
[Um ætt Kára þá, er að framan greinir, hefur Benedikt Sveinsson, fyrrv. alþ.nt.
leiðbeint mér.]
Jóhannes Askelsson.