Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 23
RAUÐHÓLL
15
hljóta að vera ættaðlr úr hnullungadreif eða -kambi, senr liggur að
vísu nokkru dýpra, en er þó meðal hinna ungu, lausu jarðlaga, sem
liggja ofan á grágrýtisgrunninum. Þetta styður óneitanlega þá skoð-
un, að um gervigos eitt hafi verið að ræða við ’myndun Rauðhóls.
Ef þar hefði komið upp raunverulegt eldgos, djúpt úr jörðu, mætti
búast við að finna meðal gosefnanna aðkomusteina brotna úr föstu
bergi, grágrýti eða móbergi. En ekkert slíkt brot lief ég getað fundið
þrátt fyrir allm kla le-it. Allir |>eir aðkonnisteinar, sem eru úr grá-
grýti — eins og berggrunnurinn fast norðan við Rauðliól og væntan-
lega einnig und.’r lionum — eru lábarðir hnullungar.
En ef Rauðhóll er gervigígur, nægir ekki sú skýring hinna erlendu
jarðeldafræðinga, sem að framan getur, að við slíkar myndanir gjósi
aðeins upp úr þykku hraunflóði, því að við myndun Rauðhóls hefur
bersýnilega gosið upp úr undirlagi hrauns'ns. — Og xneira að segja:
Skýring sú, er Iiér að framan var höfð eftir Þorvaldi Thoroddsen,
hrekkur skamrnt, því að Rauðhóll er a. m. k. að nokkru leyii mynd-
aður framan eða utan við jaðar hins rennandi lirauns. Þessar stað-
i-eyndir, býst ég við, að flestum (erlendum) jarðeldafræðingum
þættu stappa nærri fullri sönnun fyrir því, að Rauðhóll sé ekki
gervigígur, heldur raunverulegur eldgígur, myndaður áður en hraun-
ið rann. En því til andsvars vil ég benda á enn eina staðreynd, sem
styður gervigígst i 1 gátuna.
Hér í nágrenninu — og raunar víðar um land — eru ýmsar jarð-
myndanir, sem líkjast svo Rauðhól, að ætla verður, að þær séu eins
til orðnar. Skulu hér nefndir til dærnis Rauðamelur við veginn suður
með sjó, um .5 krn ,,suður“ (þ. e. VSV) frá Rauðhól, og Rauðhólar
við Elliðavatn. Enn fremur má benda á gjallhólana í Aðaldal í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Á síðustu árum hefur feikimikil íauðamöl verið
tekin bæði úr Rauðamel og Rauðhólum, en ég hef ekki skoðað
malargryfjurnar til neinnar hlítay. Þó hef ég séð í Rauðamelsgryfj-
unum svipaða hvíta leirköggla sem í Rauðhól. Allir þessir gjallhólar
eða þyipingar af gjallhólum standa í hraunum. En á milli hraun-
anna eru stór svæði, þar sem einsætt er, að jarðeldur Iiefur aldrei
bært á sér eftir ísöld — í Aðaldal jafnvel ekki síðan löngu fyrir ísöld.
Hraunin, sem hólarnir standa í, hafa öl 1 runnið langar leiðir að.
Með öðrum orðum: gjallhólarnir eru ekki á neinu jarðeklasvæði.
El' þeir væru raunverulegar eldstöðvar, þá væru þeir í fyrsta lagi ein-
kennilega afskekktir frá öðrum eldstöðvum. í öðru lagi væru þessir
stöku hólar eða óreglulegu hólaþyrpingar hér í grenndinni kynlega