Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1956, Qupperneq 24

Náttúrufræðingurinn - 1956, Qupperneq 24
18 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN (Rasse), og notar hann því orðið „Form“, sem er hlutlaust, hvað þetta snertir. Kotthaus er þeirrar skoðunar, að mjög hæpið sé að telja þaðsérstaka tegund. Rússinn Travin (12)hefur lýst nýrri tegund karfa í Barentshafi og skýrir hana Sebastes mentella. Þar sem þessi tegund virðist í öllum aðalatriðum líkjast afbrigðinu, sem hér hefur verið nefnt djúpkarfi, verður ekki farið fleiri orðum um hana. Um fæðu karfans hafa menn heldur lítið vitað, því að maginn er oftast umhverfur, þegar fiskurinn kemur upp úr sjó. Rannsóknir hafa þó leitt í ljós, að smákrabbadýr muni vera aðalfæða karfans. Nýjustu athuganir Ameríkumanna sýna, að ljósátutegundin Mega- nyctiphanes noruegica (M. Sars) myndar aðalfæðustofninn á viss- um svæðum þar (9). í sömu átt benda athuganir gerðar við Austur- Grænland s.l. sumar, hvað það svæði snertir. Á öðrum svæðum við Ameríku virðast marflóategundir og krabbaflær vera aðalfæðan. Annars tekur karfinn líka til sín töluvert af ýmsum smáfiskum (s. s. gulldepplum) og litlum kolkröbbum. Auk þessa hafa fundizt í maga hans pílormar o. fl. „Hve gamall er hann þessi?“ Þetta er spurning, sem oft er varpað fram af sjómönnum um borð í veiðiskipum um leið og þeir benda á einhvern karfann í kösinni á dekkinu. Þetta er spurning, sem við vildum og þurfum að geta svarað. En því miður hefur ekki, enn sem komið er, tekizt að aldurgreina karfann með vissu. Aldur fiska er, sem kunnugt er, ákvarðaður eftir hreistri, beinum eða kvörnum. Myndast hringir í þessum líffasrahlutum, og stafa þeir af mismun- andi hröðum vexti, sem er afleiðing góðra eða lélegra næringar- skilyrða. Viss árstíðaskipti eru að þessu í sjónum, svo að hvert ár afmarkast á þennan hátt. Mjög er misjafnlega auðvelt að greina aldur hinna ýmsu fiska. Hjá helztu nytjafiskunum, s. s. þorski og síld, er þetta ekki lengur neinum teljandi örðugleikum bundið, og greina má aldur þessara fiska með allmikilli nákvæmni. í karfakvörnum og hreistri mynd- ast einnig hringir, en mönnum ber ekki saman um, hvernig beri að þýða þá. Eru um það tvær kenningar, sem ekki verða samræmd- ar, því að svo mikið ber á milli. í kvörnum karfans og hreistri er mikill fjöldi hringa. Byggist önnur kenningin á því, að telja beri hvern hring sem árhring. Hins vegar skera sumir hringanna sig meir úr, og myndast þannig belti í hreistri og kvörnum. Gengur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.