Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1956, Page 44

Náttúrufræðingurinn - 1956, Page 44
38 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN þessi er mjög stór, svo að notuð er venjulega önnur eining, sem er einn milljónasti hluti úr curi og nefnist mikrocuri. Geislaverkun eins mikrocuri er þó svo mikil, að hættuleg er mönnum. Geislamagn má og mæla í „röntgen“, en sú eining var fyrst notuð fyrir röntgen- geisla. Eitt röntgen er mjög smá eining, en þó er talið, að hámarks- skammtur geislunar fyrir mann sé 0,3 röntgen á viku, ef ekki á að leiða af heilsutjón. HIN NÁTTÚRLEGA GEISLUN. Geislavirk efni koma svo að segja alls staðar fyrir í náttúrunni. Má segja, að heimurinn sé allur meira og minna geislavirkur. Stöð- ugt er skotið að okkur alls konar geislum og efnisögnum. Utan úr himingeimnum koma geimgeislarnir, aðrir kjarngeislar koma frá geislavirkum efnum í jarðveginum, sjónum, fæðunni, sem við borðum, og loftinu, sem við öndum að okkur. Sem betur fer er magn þessarar geislunar mjög lítið, því að sá skammtur, sem liver maður fær frá náttúrunnar hendi, er aðeins talinn vera 0,1 röntgen á ári. Geislavirk efni safnast alltaf fyrir í líkamanum. Talið er, að í líkama fulltíða rnanns sé magn þeirra orðið, sem svarar til 5—9 þiis- undustu hlutum úr mikrogrammi af radíum, þ. e. 5—9 þúsundustu úr mikrocuri (4). Þetta eru þær geislaverkanir, sem mannkynið hefur búið við um langan aldur, en með vaxandi framleiðslu og notkun geislavirkra efna, fara þessi áhrif í vöxt, svo að sá skammt- ur geislunar, er hver maður fær yfir ævina, verður stöðugt stærri. í dag eru framleidd í kjarnorkuverum geislavirk efni, sem gefa frá sér hundruð miljóna curi, en til samanburðar má geta þess, að allt það radíum, sem lramleitt hefur verið til þessa dags, er aðeins 1500 g, eða 1500 curi. Fengju þau geislavirku efni, sem framleidd eru dags daglega, að dreifast út um heiminn, mundi hin nátti'irlega geislun, sem maðurinn verður að búa við, aukast stórkostlega. ÁHRIF GEISLUNAR Á LÍKAMANN. Það kom fljótlega í Ijós, eftir að farið var að vinna með hin geislavirku efni, að þau gátu liaft skaðleg áhrif, þó að um mjög lítið magn af þeim væri að ræða, aðeins ef áhrifin voru nægilega langvarandi. Afleiðingarnar komu oft ekki í Ijós fyrr en eftir mörg ár og lýstu sér þá oft sem ólæknandi sjúkdómar, svo sem krabbamein

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.