Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1973, Side 10

Náttúrufræðingurinn - 1973, Side 10
150 NÁTTÚRUF RÆ BINGUIUNN ber þar helzt að geta Hollendinganna M. G. Ruttens og R. V. van Bemmelens, sem unnu sumarið 1950 að rannsóknum í Ódáðahrauni og þar á meðal á móbergsíjöllum. Þeir komust að mjög svipaðri niðurstöðu og Guðmundur um upphleðsluhætti móbergsfjallanna. Það má reyndar teljast ólíklegt, að þeir hafi ekki kynnst kenningum Guðmundar, og fer ekki lijá því, að sú getgáta sé sett fram, að þeir hafi viljandi ekki getið um niðurstöður Guðmundar í bók sinni Tablemountains of Northern Iceland (1955), sem kom út 12 árum seinna en Árnesingasaga, þótt slíkt verði ekki sannað. Hins vegar er Jtað víst, að Kanadamaðurinn W. H. Mathews, sem rannsakaði mó- bergsfjöll í British Columbia og setti fram „stapakenningu“ um upp- runa þeirra árið 1947, komst að svipuðum niðurstöðum án nokk- urrar vitneskju um kenningar Guðmundar. Strax í upphafi Surtseyjargossins varð augljóst, að Jrað gos yrði prófsteinn á stapakenninguna. Það var því Guðmundi áhugamál að fylgjast með gosinu og síðan að athuga gerð gosefna. Þó urðu ferðir lians þangað allt of fáar — og var ekki um að kenna áhugaleysi hans, heldur lélegri skipulagningu Surtseyjarrannsókna, enda fór hann þangað sjaldnar en hann hefði viljað, Jrótt ýmsir gerðu sér tíðförult þangað út, sem minna áttu erindið. En hvað um það, í Surtsey er að sjá endanlega sönnun stapakenningar Guðmundar Kjartanssonar um upphleðsluhætti móbergsfjallanna, og vantar þar ekkert á nema borholu til að fá úr því skorið, hvort neðst í sökkli eyjarinnar sé að finna bólstraberg. Surtsey er jafnvel komin svo langt á braut sinni til fullkomins móbergsstapa, að lausu gosefnin J:>ar eru farin að breytast í hart míiberg eins og Sveinn Jakobsson hefur nýlega sýnt fram á. Um Jjetta efni allt ritaði Guðmundur ýtarlega grein í Nátt- úrufræðinginn 1966 — Surtsey og staparnir. Má telja J^að næsta ein- stætt, að jarðfræðingur fái í lifanda lífi að sjá náttúruna sjálfa reka svo tryggilega stoðir undir kenningar sínar eins og Guðmnndur varð aðnjótandi í Surtseyjargosinu. Með hinum umsvifamiklu rannsóknum, sem nú lara frarn á út- hafshryggjunum og fjöllum á hafsbotninum, hefur stapakenningin fengið aukið gildi, enda mun berg flestra mishæða á úthafsbotninum vera svipað að gerð og í móbergsfjöllunum. Um þetta efni hélt Guðmundur einmitt erindi á ráðstefnu Jarðfræðafélagsins 1967. Guðmundur Kjartansson fór víða um land og athugaði jökul- minjar og þó einkum jökulrákir, sem hann leitaði að jafnt á yztu

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.