Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1973, Qupperneq 11

Náttúrufræðingurinn - 1973, Qupperneq 11
NÁTTÚRUFRÆÐ JN GURINN 151 annesjum sem á hæstu fjöllum. Hann bætti þar mörgu við hinar merku rannsóknir Þorvalds Tltoroddsens á þessu sviði. Slíkar rann- sóknir veita vitneskju um skriðstefnu jökla síðasta jökulskeiðs, svo og um þykkt þeirra og útbreiðslu og þá um leið, hvort nokkurs stað- ar hafi verið jökullaus svæði, þar sem hluti fánu og flóru lands- ins liefði getað tórt af fimbulvetur ísaldarinnar. Á annesjum öllum og ýmsum úteyjum fann hann jökulminjar nema á Langanesi utan Skoruvíkur. Þetta sýnir, að jöklar hafa á síðasta jökulskeiði víðast hvar náð á haf út. Um jökullaus svæði á fjallatindum inn til landsins gætir öðru máli, þar er oftast erfitt að finna jökulrákir, enda frost- veðrun ör, svo að klappir molna. Af vöntun jökulráka á slíkum svæðum gat hann því litlar ályktanir dregið. Rannsóknir Guðmund- ar á jökulrákum sýndu m. a., að núverandi vatnaskil á miðhálend- inu höfðu ekki verið ísaskil eins og talið hafði verið, heldur hefðu þau legið langt sunnan núverandi vatnaskila, sennilega nærri Tungná, eins og norðurstefna jökulráka allt suður til Þórisvatns bendir til. Um þessar rannsóknir ritaði Guðmundur margar rnerkar greinar, og ber þar einkum að nefna Fróðlegar jökulrákir (Náttúru- fræðingurinn 1955) og ísaldarlok og eldfjöll á Kili (Náttúrufræð- ingurinn 1964). Um fallvötn ritaði Guðmundur margt, og ber þar fyrst að nefna grein hans um íslenzkar vatnsfallategundir í Náttúrufræðingnum 1945. Hann greindi íslenzkar ár þar í gleggri flokka en áður hafði verið gert, og skipti m. a. bergvatnsánum í tvennt, þ. e. dragár og lindár. Grein þessi er merkt tillag í vatnafræði landsins — grund- vallarit — sem síðari rannsóknir hafa mjög byggt á. Einnig ritaði hann snilldargreinar um einstakar ár eins og Tungná og Helliskvísl á Landmannaafrétti. Á rannsóknaferli sínum atlnigaði Guðmundur ýmsar eldstöðvar og hraun auk Heklu og Hekluhrauna. Þar má t. d. nefna, að hann rannsakaði um árabil útbreiðslu og aldursafstöðu Tungnárhrauna, og jrá ekki sízt hins stærsta þeirra, Þjórsárhrauns, og fann upptök þeirra á Tungnáröræfum. Hann hafði löngum í huga að rita bók um þessi hraun, en það dróst mjög á langinn, enda bættist á síðasta ára- tug mikil vitneskja við um þau við hinar miklu virkjunarrannsóknir Orkustofnunar á vatnasviðunt Tungnár, Þjórsár og Hvítár, svo að hann taldi þekkingu sína úrelta. Haustið 1971 vann hann að ritgerð um Búrfellshraun við Hafnarfjörð, en ekki tókst honum að ljúka
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.