Náttúrufræðingurinn - 1973, Blaðsíða 14
154
N A T T' Ú R U F R Æ ÐIN G U RIN N
vitað mikils tíma. Á löngum ritierli kom hann fram með rnörg ný-
yrði, sem flest falla svo vel í málið, að erfitt mun þeim, sem ekki
þekkja til, að greina þau frá eldri orðunt málsins. Við rannsóknir í
náttúrunnar ríki var hann athugull og rýninn, enda fór hann fremur
hægt yfir. Guðmundi var margt til lista lagt. Hann var söngmaður
góður og teiknari ágætur, svo sem fjöldi teikninga í ritum hans bera
ljóst vitni.
Guðmundur var tæpur meðalmaður á hæð en samsvaraði sér vel.
Hann var ljós yfirlitum og nokkuð fölur. Hann var með afbrigðum
kurteis og háttprúður. I vinahópi var hann kát ur. Honum var það
mjög fjarri skapi að trana sér fram, og má reyndar segja, að Iiann hafi
verið einum of hlédrægur. Hann var með eindæmum hollráður og
eiga hinir yngri jarðfræðingar honum margt að þakka. Hann var allra
manna ómannglöggastur, en á landslag og örnefni voru fáir honum
gleggri. I þjóðmálaskoðunum var hann róttækur, þótt aldrei færi
hann hátt með skoðanir sínar. Hann var eindreginn hernámsand-
stæðingur, svo sem er um marga, sem þekkja þetta land bezt.
Guðmundur kvæntist 2. nóvember 1935 Kristrúnu Steindórsdótt-
ur, og lifir hún mann sinn. Kristrún var dóttir Steindórs Björnssonar
frá Gröf, efnisvarðar hjá Landsímanum, og konu hans Guðrúnar
Guðnadóttur. Þau eignuðust tvö börn, Sólveigu, fædda 21. febrúar
1942, gil'ta Guðjóni Axelssyni, tannlækni, og Kjartan, fæddan 1.
október 1958, nú við nám í unglingadeild Laugalækjarskóla í
Reykjavík.
Útför Guðmundar Kjartanssonar var gerð laugardaginn 22. apríl
1972. Um morguninn var haldin kveðjuathöfn í dómkirkjunni í
Reykjavík, og var kirkjan þéttsetin. Kveðjuræðu flutti séra Ólafur
Skúlason. Jarðarförin fór fram frá kirkjunni í Hruna síðdegis, og
var kirkjan þar fullsetin. Líkræðu flutti séra Sveinbjörn Sveinbjörns-
son. Jarðsett var í kirkjugarðinum í Hruna.
í fámennum hópi íslenzkra jarðfræðinga er skarð fyrir skildi, þegar
genginn er um aldur fram einn hinn bezt menntaði og mætasti
þeirra.
Þorleifur Einarsson.