Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 19

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 159 Guðmundur Kjartansson: Aldur Búrfellshrauns við Hafnarfjörð” Skilgreining og nafngift. Hafnarfjarðarkaupstaður stendur hálfur á jökulsorfinni grágrýtis- klöpp, hinn helmingurinn í úfnu hrauni. Lækurinn, sem fyrrum hét fullu nafni Hamarskotslækur, en nú oftast Hafnarfjarðarlækur, fylgir nákvæmlega mörkum þessara jarðmyndana. Að hafnfirzkri málvenju er grágrýtissvæðið „fyrir sunnan læk“ en hraunið „fyrir vestan læk“. Raunar er grágrýtið, bæði sunnan lækjar í Hafnarfirði og um öll innnes allt til Kollaíjarðar, einnig hraun að uppruna, en of gamalt og máð til að heita svo í daglegu máli. Þessum fornu grágrýtishraun- um er hárrétt lýst í tveimur ljóðlínum í kvæði Arnar Arnarsonar um Hamarinn í Hafnarfirði: „Jökulhefluð hamrasteypa, hafi sorfin, stormi fægð“. Veit ég þess ekki dærni, að meiri jarðsaga hafi verið réttilega sögð í svo stuttu máli. Heimamönnum í Hafnarfirði er tamast að kalla hraunið fyrir vestan læk bara Hraunið, aðrir nefna það Hafnarfjarðarhraun. En J>etta er aðeins hluti af allvíðáttumiklu hrauni. Aðrir hlutar Jress heita hver sínu nafni, t. d. Garðahraun og Gálgahraun norðvestur og norður frá Hafnarfirði, en í gagnstæða átt er Vífilsstaðahraun, Urriðakotshraun, Gráhelluhraun og Smyrlabúðarhraun (1. mynd). Allt er þetta eitt og sama hraunflóð að uppruna, og runnið í einu 1) Guðmundur Iíjartansson vann að grein þessari, þegar liann veiktist liaustið 1971, og var hún vart hálfunnin af hans hálfu. Síðari hluti greinarinnar (frá kaflanum Aldur Búrfellshrauns) var aðeins til á minnisblöðum að fyrirlestri, sem hann hélt um þetta efni á fræðslusamkomu Hins íslenzka náttúrufræði- félags hinn 20. okt. 1971. Jón Jónsson, jarðfræðingur, las handritið yfir ásamt undirrituðum, sem bjó þaö til prentunar, og var engu breytt í því nema örfá- um ritvillum. Þorleifur Einarsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.