Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 30
170
N Á T T Ú R U F RÆÐINGURJNN
óglöggur. Halli og storknunarmynstur þessarar hraunálmu benda
lielzt til, að luin sé ekki frá Búrfelli komin, heldur öðrum eldstiiðv-
um ókunnum í suðaustri, og yngri en Búrfellshraunið. Aldursmun-
ur getur þó vart verið mikill, því að í misgengisstallinum um Helga-
dal hefur þetta hraun haggazt jafnt Búrfellshrauni, en önnur liraun
í nágrenninu, sem eru ótvírætt yngri en Búrfellshraun, slétta yfir
misgengisstallana óhögguð — eða a. m. k. óbrotin. Jón Jónsson
hallast að þeirri skoðun, að þessi hraunálma sé annað hraun og
yngra en Búrfellshraun. Ég verð einnig að telja það sennilegt, en
þykir þó hitt koma til mála, að hún sé allra síðasta rennslið í Búr-
fellsgosinu, komið úr hráuntjörninni í Kringlóttugjá.
Hja l larn isgengi ð
Auk misgengissprungunnar, sem þegar er getið og klýfur sjálft
Búrfell, verður önnur slík brotlöm, nokkurn veginn samsíða hinni
fyrri og sízt minni í sniðum, á leið Búrfellshrauns um lj4 km
norðar og vestar. betta er sú misgengissprunga, sem Poivaldur
Thoroddseu lýsir rétt, en nefnir ranglega „Búrfellsgjá". En Jón
Jónsson (1965) nefnir hana Hjallamisgengið, og er jrað réttnefni,
því að Hjallarnir sunnan og austan við Vífilsstaðahlíð eru sjálfur
misgengisstallurinn þar sem hann er hæstur. Þeir eru allskörp brúu,
allt að 60 m há og nærri 5 km á lengd frá suðurhorni Vífilsstaða-
hlíðar langleiðina norðaustur að Elliðavatni. Bi'ekkan veit gegn
suðaustri. Brún hennar er víðast klettabelti en urðarbrekka undir,
víðast gróin grasi og kjarri. Á köflum er meginsprungan tvískipt
og stallarnir tveir hvor upp af öðrum. Hinn misgengni berggrunn-
ur er þarna allur úr grágrýti bæði uppi á Hjöllunum og við rætur
þeirra.
Frá suðurenda Vífilsstaðahlíðar heldur Hjallamisgengið áfram
með lítið eitt suðlægri stefnu þvert yfir Búrfellshraun og kernur
að Kaldá laust vestan við Kaldársel. Misgengið er glöggt alla þessa
leið, en stallurinn miklu lægri í Búrfellshrauni en í Hjallagrá-
grýtinu. I ungu hraununum sunnan við Kaldá vottar ekkert fyrir
misgenginu. En handan þeirra hrauna taka aftur við fornleg hraun
(óskyld Búrfellshrauni) með misgengissprungum, t. d. Sauðabrekku-
gjá, sem að stefnunni til geta verið framhald Hjallamisgengisins.
Fast vestan við aðalmisgengisstallinn um þvert Búrfellshraun