Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 32
172
NÁTTÚ RUFRÆÐI NGURJ N N
hlýtur allur að vera tilkominn við höggun á hrauninu eftir að það
storknaði. Með tilliti til þessa halla tel ég mega áætla lóðrétt mis-
gengi hraunsins eitthvað 20 m og þó fremur meira en minna.
Enn erfiðara er að áætla liæð misgengisins í lieild í grágrýtinu (í
Hjöllum og Smyrlabúð). I>að misgengi hófst meðan enn lá ísaldar-
jökull yfir landinu. Hann svarf ofan af grágrýtishraununum, svo að
nú sést ekkert eftir af upphaflegu yfirborði þeirra, og verður ekki
vitað nákvæmlega Jivernig því liallaði. Hann mæddi ltvað fastast
á sjálfum brotabrúnunum, því að þær vita einmitt gegn skriðstefnu
lians, og sljóvgaði þær svo að á sér. Af þessum sökum má gera ráð
fyrir, að í grágrýtinu — jafnvel enn fremur en í hrauninu — sé
misgengið mun meira en nemur hæð sjálfs misgengisstallsins. Tel
ég það vart geta verið undir 80 m í heild, en hugsanlegt að það
sé mun meira.
Samkvæmt framanskráðum áætlunum mínum um hæð Hjalla-
misgengisins urðu þrír fjórðu hlutar jtess á tímabilinu frá storknun
grágrýtisins til gossins í Búrfelli, en einn fjórði hluti á tímabilinu
milli Búrfellsgossins og myndunar ungu, högguðu hraunanna sunn-
an Kaldár.
En sunnan þeirra ungu hrauna, sem sum hver munu runnin eftir
landnám (Guðmundur Kjartansson 1952 og 1954) taka aftur við
fornleg hraun með greinilegum misgengissprungum. I>ar er t. d.
misgengisstallur gegnt suðaustri, norðaustur af Fjallinu eina og
Sauðabrekkugjá röskum km norðar og vestar, bæði nálægt því að
vera í framlialdsstefnu Hjallamisgengisins. Þessi Iiraun eru af allt
öðrum uppruna og því sennilega ekki eins gömul.
Þó að I-Ijallamisgengið sé um fimmfalt stærra í grágrýtinu en í
Búrfellshrauni, er lega jress samt enn skarpara mörkuð í hrauninu.
Því veklur aldursmunurinn. f grágrýtinu er brún brotsársins eflaust
mynduð fyrir ísaldarlok og undir jökli, sem svarf liana til og sljóvgaði,
en smurði auk jress yfir sprungurnar með ruðningi sínum. í hraun-
inu er brotsárið aftur á móti ómáð og gjárnar ófylltar. Á Jreim köfl-
um svipar Jressari brotalöm mjög til liinna aljiekktu misgengisstalla
Almannagjár og Hrafnagjár í Þingvallasveit, enda alveg sams konar
myndun, aðeins minni í sniðum.
í nyrðri hraunkvíslinni sker misgengissprungan hrauntröðina,
Búrfellsgjá, nokkur lmndruð metrum vestan Gjáarréttar, og stendur
réttin þar á flötum og allvel grónum helluhraunsbotni traðarinnar,