Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1973, Qupperneq 34

Náttúrufræðingurinn - 1973, Qupperneq 34
174 NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN stallinn í grágrýtismynduninni rnilli Smyrlabúðar og Hjalla, hefur naumast komizt þá leið fyrr en eftir að mikil uppfylling var orðin af hrauni suðaustan við stallinn. En þó fór svo áður en lauk, að langmestur hluti þess hrauns sem upp kom í öllu Búrfellsgosinu rann þessa leið. Norður af hraunlausu eyjunni með Smyrlabúð, Sléttuhlíð og fleiri grágrýtisholtum þar á milli verður rnikil breidd á nyrðri hraun- álmunni, og lieitir þar Smyrlabúðarhraun. Frá því hefur hraun- kvísl fossað vestur af slakka milli Sléttulilíðar og Setbergshlíðar. Þar fyrir neðan hefur hún breiðst yfir norðurenda „Kaldárhraunsins", svo að nú verður ekki séð hversu langt það nær, og síðan myndað alla þá hraunbreiðu, sem nú heitir Gráhelluhraun og runnið hefur norðvestur með Setbergshlíð. Norðvesturendi Gráhelluhrauns dregst saman í odda vestan undir Svínholti. Þar sprettur Hafnarfjarðarlækur upp undan hrauninu, og heita þar Lækjarbotnar. Sú uppspretta var vatnsból Hafnarfjarð- arkaupstaðar til skamms tíma, en nú er vatnið leitt þangað úr Kald- árbotnum. En hraunkvíslin endar ekki með öllu í Lækjarbotn- um. Mjór hraunstraumur liggur þaðan áfram niður með læknurn og allt niður í Hafnarijarðarkaupstað, en hverfur þar undir Hafnar- fjarðarhraun, sem síðar rann í sama gosi. Eyrsta spölinn niður frá Lækjarbotnum hefur þessi hrauntaumur runnið eltir þröngu gili og fyllt það því nær upp á barma. Það er aðeins um 50—60 m breitt, en um dýpt þess og þykkt hraunsins verður nú ekkert sagt. Á einum stað skagar vestri gilbarmurinn sem lágur þverhníptur klettur upp yfir hraunjaðarinn. Sá klettur er úr vel hörðu þursabergi sem þarna virðist undirlag Hafnarfjarðar- grágrýtisins. En gegnt honum austan við hrauntauminn eru grá- grýtisklappir. Þarna hefur gilið bersýnilega grafizt í hart berg. Vænt- anlega er það verk Kaldár hinnar fornu, er hún rann þessa leið til sjávar. Eins og þegar er sagt, eru Smyrlabúðarhraun, Gráhelluhraun og mjói hraunstraumurinn niður frá Lækjarbotmun aðeins affallskvísl úr stærstu álmu Búrfellshrauns. Meginhraunflóðið rann í beina stefnu norðvestur með Vífilsstaðahlíð og heitir á þeim kafla Urriða- kotshraun. Þá leið liggur og hrauntröðin Selgjá, sem er óslitið fram- hald af Búrfellsgjá, en fer grynnkandi og hverfur með öllu sunnar- lega í Urriðakotshrauni. Um það bil virðast rennslishættir hraun-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.