Náttúrufræðingurinn - 1973, Blaðsíða 36
176
NÁTT ÚRUF RÆÐINGURINN
heitir Eskines (eða Eskineseyri, sem er óheppilegt nafn á hraun-
tanga) og skilur Lambhúsatjörn frá Arnarnesvogi, en þau eru bæði
vogar inn úr Skerjafirði. Eram undan Eskinesi er nú aðeins 1—2
m dýpi niður á hraunlausan botn um stórstraumsfjöru. Eskines er
sú tota Búrfellshrauns sem lengst hefur runnið frá upptökum, um
12 km veg, mælt eftir miðri Búrfellsgjá og miðlínu hraunsins í
framhaldi af henni. En er þetta gerðist var sjávarborð nokkru lægra
en nú, og hefur hrauntotan vaíalítið staðnæmst þarna ofan sjávar-
máls, líklega í grunnu lækjargili.
Suðurjaðar Búrfellshrauns á láglendinu er miklu hlykkjóttari en
norðurjaðarinn. Suður úr mótum Vífilsstaða- og Hafnarfjarðai-
hraunsins teygðist hraunsepi suðsuðaustur inn í dalskvompu, þar
sem nú er Urriðavatn, milli Urriðakotsholts að austan og Setbergs-
liamars að vestan. Við það stíflaðist upp vatnið innst í dalnum og
liggur nú líkt skeifu að lögun utan um enda hrauntotunnar. —
Vestan við Setbergshamar teygðist þó breiðaia barð úr Hafnar-
fjarðarhrauni enn lengra suður. I>ar nær það saman við mjóa hraun-
tauminn, sem áður í sama gosi hafði runnið sunnan um Lækjar-
botna í framhaldi af Gráhelluhrauni, eins og fyrr var frá sagt. Á
hraunmótunum við Hafnarfjarðarlæk neðan við Setbergstúnið má
sjá, að hraunið, sem koin að norðan, liggur ofan á því, sem kom
að sunnan. Um leið og þessar tvær álmur Búrfellshrauns mættust,
lokaðist hringurinn um stórt hraunlaust svæði, sem nær samlellt
yfir alla Setbergshlíð, Svínliolt, Urriðakotsholt og norður fyrir Set-
bergshamar.
Sennilegt verður að teljast, að svæðinu norðan og vestan Hafnar-
fjarðarlækjar, þar sem hálfur Hafnarfjarðarbær stendur nú, hafi
fjörðurinn lyrrum skorizt lengra inn, en sá hluti hans fyllzt af hrauni
í Búrfellsgosinu. Nú er óslitin hraunströnd, um 2J/2 km löng, frá
fjarðarbotninum út fyrir Balaklett á norðurströnd fjarðarins. Bala-
klettur er laust fyrir utan mörk Hafnarfjarðarkaupstaðar og því
í Garðahreppi. Hann er allra vestasta tota Búrfellshrauns og nær
litlu skemmra en Eskines frá upptökum þess. Hjá Balakletti snar-
beygir hraunjaðarinn á land upp til norðausturs, en síðar norð-
vestur, og liggur hár og glöggur um þvert Álftanes til Lambhúsa-
tjarnar — og hefur hann þá verið rakinn í aðaldráttum umhverfis
allt Búrfellshraun.
Vesturbær Hafnarfjarðar stendur í aflíðandi brekku í Hafnar-