Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 37
NÁTTÚRUF RÆÐINGURINN
177
fjarðarhrauni og uppi á brún hennar. Þar eins og víðar er liraunið
úlið, xneð kröppum bollum og hvössum kömbum, en hefur raunar
mjög verið jafnað af manna völdum undir hús, götur og fiskreiti.
í skrúðgarðinum Hellisgerði eru þó upphaflegar storkumyndanir
hraunsins óspjallaðar að kalla, og auk þess sem þær eru ágætt skjól
trjám, runnum og blómfögrum jurtum. Er gerðið að landslagi til
afbragð annarra skrúðgarða.
I vesturjaðri Hafnarf jarðarbæjar er lítill hraunlaus blettur, um
200 m á hvorn veg, nefndur Víðistaðir. Þetta er ein af þeim fáu
eyjum, sem standa upp úr Búrfellshrauni og raunar aðeins smá-
hólmi í samanburði við hinar háu grágrýtiseyjar, sem áður var
getið (með Setbergshlíð og Smyrlabúð). Ilitt er þó kynlegra um
Víðistaðahólmann, hve lágur hann er og flatur, en hraunbrúnin
há allt í kring. Áður en hraunið rann, hefur hann væntanlega verið
dálítil hæð, sem það sveigði hjá, en fyllti svo rækilega að á alla
vegu. Nú eru Víðistaðir tún, og að því er séð verður í ræsum og
skurðum, er jiar möl undir jarðvegi, sjóvelktur jökulmelur, en
hvergi sér á grágrýtisklöppina, sem væntanlega liggur undir meln-
um.
Undir núverandi strandlínu heldur lnaunbrekkan í Vesturbæn-
um áfram neðansjávar með svipuðum lialla, og er jrað aðdýpi miklu
meira en annars staðar í firðinum og við Álftanes. Við brekkuræt-
urnar tekur við flatur sjávarbotn úr leir og sandi. Einsætt má telja,
að jiessi brekka sé sjálf frambrún hraunsins, lengra hafi Jiað ekki
runnið. Dýpi við hraunbrúnina er nú mest um 10 m (um stór-
straumsfjöru) undan Langeyri, um 150 m frá landi, en minnkar
þaðan í báðar áttir. Innar í firðinum er það t. d. nálægt 5 m við
nyrðri hafnargarðinn. Eflaust liggur neðra borð hraunsins þó nokkru
dýpra en jressar dýptartölur segja til um, Jiví að bæði má ætla, að
hraunið hafi sokkið nokkuð í laus setliig (framburð Fornu-Kaldár),
sem Jrarna voru fyrir, Jregar Jiað rann, og enn fremur hefur
fjörðurinn eitthvað grynnkað síðan af framburði Hafnarfjarðarlækj-
ar.
Allt Jiað, sem hér er sagt um frambrún Hafnarfjarðarhrauns,
bendir vissulega til Jiess, að hraunið hafi runnið niður í sjó í firð-
inum. Þetta munu og flestir hafa haft fyrir satt, og enn má það
teljast sennilegt. En hins ber að gæta, að á tímum Búrfellsgossins
lá sjávarborð nokkru lægra en nú. Ef sá munur var meiri en 10 m,
12